Sumarfrí með Almari Frey
22.7.2010 – 23:43 | No Comment

Leikskólinn fór í sumarfrí hjá Almari um síðustu helgi, Ösp er ennþá að vinna, fer ekki í frí fyrr en eftir Verslunarmannahelgi og Frank Gabríel er fyrir Vestan hjá tengdó (eins og lesa má um …

Read the full story »
Óflokkað

Frank Gabríel

Daglega lífið

Vert að skoða

Almar Freyr

Pæling »

Þjóðhátíð – 18.000 gestir?
28.7.2010 – 22:10 | 2 Comments

Ég hef farið nokkrum sinnum á Þjóðhátíð í Vestmannaeyjum. Í ein fjögur skipti ef minnið er ekki að bregðast mér. Gestafjöldinn í þau skipti sem ég hef farið hefur verið í kringum 9.000 manns. Öll skiptin fór ég áður en sviðinu var snúið og  “Brekkunni” breytt.

Í öllu falli þá er það mitt mat, að Vestmannaeyjar bera ekki mikið fleiri gesti en 9-10 þúsund. Bærinn er fullur af fólki, veitingastaðir eru fullir af fólki, bekkjarbílar eru fullir af fólki, Dalurinn er fullur af fólki og allt sem fæst keypt á annað borð -matur, veitingar, þjónusta- er á tvöföldu verði.

Sé þessi gestafjöldi næstum tvöfaldaður -í 18.000 gesti- er hætt við að þessi sjarmi sem er á Þjóðhátíð í Vestmannaeyjum hverfi. Þetta verði bara kraðak af fólki að troðast fram og aftur um svæðið leitandi að lausu klósetti.

Ég er heldur ekki viss um að tíðar ferðir Herjólfs milli Eyja og Landeyja séu af hinu góða varðandi Þjóðhátíð. Í fyrsta skiptið sem ég fór á Þjóðhátíð ’96 tókst mér að týna peningunum mínum á laugardeginum, bjórinn var volgur, hamborgararnir súrnuðu í töskunni og það rigndi eldi og brennistein. Ég gerði því tilraun til að fara heim á sunnudagsmorgninum þegar ég vaknaði, en Herjólfur var þá farinn (einu) ferðina til Þorlákshafnar þann daginn. Ég gerði því gott úr hlutunum og djammaði af mér rassinn um kvöldið og skemmti mér konunglega með Ragga vin. Eftirá, hefði ég ekki viljað fara heim á sunnudeginum. Ef Herjólfur aftur á móti hefði farið 5 ferðir þann dag eins og hann mun sennilega gera næsta sunnudag, hefði ég farið heim áður en Þjóðhátíð var búin.

———————————–

Ég tel að ÍBV ætti að reyna að takmarka fjöldann á Þjóðhátíð með einhverjum hætti. Einhver háttur er auðvitað að selja FÆRRI miða í Dalinn. Fleiri miðar þýða auðvitað meiri tekjur, og Þjóðhátíð er vissulega tekjupóstur fyrir ÍBV. Ef ætlunin er að græða sem mest er skiljanlegt að sem flestir miðar eru seldir. En eins og ég nefndi hér að ofan fer sjarminn af Þjóðhátíð með 18.000 gestum. ÍBV getur þá farið þá leið fækka miðum og hækka miðaverð til að fá samsvarandi tekjur af 12.000 miðum og 18.000 miðar gefa í dag. Til að koma í veg fyrir brask með miða þyrfti þá að gefa þá út á nafn (t.d. í gegnum Miða.is). ÍBV gæti líka sýnt alvöru virðingu gagnvart Þjóðhátíð og gefið út 12.000 miða, hætt að horfa á gróða út í eitt og haldið miðaverði eins.

Popularity: 27% [?]

Sumarfrí með Almari Frey
22.7.2010 – 23:43 | No Comment
Sumarfrí með Almari Frey

Leikskólinn fór í sumarfrí hjá Almari um síðustu helgi, Ösp er ennþá að vinna, fer ekki í frí fyrr en eftir Verslunarmannahelgi og Frank Gabríel er fyrir Vestan hjá tengdó (eins og lesa má um …

Frank Gabríel ekkert á heimleið
22.7.2010 – 00:00 | No Comment
Frank Gabríel ekkert á heimleið

Við fórum Vestur á firði í síðustu viku,  stoppuðum í Bolungarvík hjá tengdó í 2 daga og fórum svo á ættarmót á Núpi í Dýrafirði.
Áður en við fórum Vestur vorum við búin að biðja tengdó …

Eru stjórnvöld að reyna að hafa áhrif á hlutlausa dómstóla??
20.7.2010 – 13:23 | One Comment
Eru stjórnvöld að reyna að hafa áhrif á hlutlausa dómstóla??

Fitch matsfyrirtækið gaf út óvissu-”ummæli” í gær um fjármálakerfið á Íslandi; sagði dóm Hæstaréttar um ólögmæti gengistryggðu lánana geta dregið úr stöðugleika fjármálakerfising og seinka efnahagsbata á Íslandi.
Gylfi Magnússon viðskiptaráðherra sagði í fréttum RÚV í …

Fjármögnunarfyrirtækin verða öll gjaldþrota
14.7.2010 – 12:27 | Comments Off
Fjármögnunarfyrirtækin verða öll gjaldþrota

Ég sagði við marga í framhaldi af því að dómur Hæstaréttar um lögmæti gengistryggingar og byrjað var að rífast um vextina sem notast ætti við af þessum lánum, að þau yrðu hvort eð er öll …

Og hvað mega útlendingar þá kaupa á Íslandi?
13.7.2010 – 23:09 | Comments Off
Og hvað mega útlendingar þá kaupa á Íslandi?

Í tilefni þessarar umræðu um Magma Energy og skúffuna í Svíþjóð, fór ég að spá hvað það er sem útlendingar mega og mega ekki gera á Íslandi. Útlendingar mega ekki eiga náttúruauðlindir og ekki í …

Tjaldvagn og útilegur
6.7.2010 – 00:27 | One Comment
Tjaldvagn og útilegur

Þá eru tvær útilegur á tjaldvagninum að baki og fleiri framundan. Tjaldvagninn var sannarlega góð kaup og hafa kveikt í okkur Ösp mikla ferðalöngun um landið. Þurfum að hafa vit fyrir hvort öðru til að …

Yfirtaka framkvæmdavalds á dóms- og löggjafarvaldi
30.6.2010 – 16:11 | One Comment
Yfirtaka framkvæmdavalds á dóms- og löggjafarvaldi

Ég hef viljandi ekkert skrifað um dómana tvo sem féllu í Hæstarétti 16. júní sl. og snéru að lögmæti þess að tengja afborganir af lánum við gengi erlendra gjaldmiðla. Ég hef vissulega skoðun á því …

Út að hjóla
26.6.2010 – 00:39 | Comments Off
Út að hjóla

Er búinn að enduruppgötva hve gaman er að fara út að hjóla.
Fór með Frank Gabríel út að hjóla síðasta sunnudagskvöld og hann stóð sig eins og hetja í ansi löngum hjólatúr. Ætluðum upphaflega aðeins að …

Er þjóðin bara ekki búin að gefast upp?
14.6.2010 – 22:40 | Comments Off
Er þjóðin bara ekki búin að gefast upp?

Steingrímur J. Sigfússon sagði í eldhúsdagsumræðum í kvöld að endurreisnin gangi vel og “að verkefnið væri að takast”.
Ég er ósammála honum. Ég nenni samt ekki að pirra mig á því eða koma með rök á …

Þakklæti, þakklæti og þakklæti
13.6.2010 – 01:26 | 4 Comments
Þakklæti, þakklæti og þakklæti

Á svona stundum er maður deigur eins og smjör (kannski af því að maður hefur fengið sér tvo bjóra og rauðvín með matnum).
Útskrift í dag úr Háskólanum á Akureyri og langþráð markmið orðið að veruleika. …