Nýtt blogg
Ég er þá búinn að færa bloggið okkar frá Blogspot yfir á vefblogg.com. Hér ætlum við að blogga í framtíðinni.
Hægt verður að nálgast í einhvern tíma gamla bloggið okkar á heima.blogspot.com og en það verður svo á vefblogg.com/gamla.
Þetta er hrá fyrsta útgáfa af blogginu sem ég vildi klára kl 2 að nóttu áður en við förum í frí norður á Akureyri í viku. Það eiga því eftir að verða breytingar á útliti og öðru eftir því sem ég læri betur á bloggkerfið, WordPress, sem síðan keyrir á.
Þetta er mun fullkomnara kerfi og fjölbreyttara en það sem Blogspot bauð uppá og munu lesendur væntanlega fá að kynnast því smátt og smátt.
Popularity: unranked [?]

