F24 – Freyjubrunnur 24
2.3.2012 – 16:30 | Comments Off

Þá sér fyrir endann á byggingarferlinu á Freyjubrunni 24 í Úlfarárdal, eða Úlfarsfelli eða hverfinu við hliðina á Grafarholti eins og við Ösp erum farin að kalla hverfið. Við áttum að fá afhent skv. kauptilboði …


Read the full story »
Óflokkað

Frank Gabríel

Daglega lífið

Vert að skoða

Almar Freyr

Home » Óflokkað

IKEA vs Osram

Submitted by on 6.9.2008 – 22:11No Comment

Ég kaupi yfirleitt Osram perur. Mín tilfinning er að það séu bestu perurnar. Held að flestir hafi þá ímynd af Osram. Enda kosta Osram perur skildinginn. Sá þær á tilboði í Húsasmiðjunni í dag, 10 E27 60w perur á 1.450,- kr. Eru eitthvað ódýrari í Bónus, sennilega um 600,-  til 800,- kr 10 Osram perur saman í pakka.

Þá kemur IKEA til sögunnar… Þar er hægt að fá 10 IKEA perur, E27 60w á 295,-. Þú hugsar eflaust eins og ég… “æ, þetta er nú ódýrt þannig að það er í lagi að kaupa það þó þetta sé sennilega ekki jafn gott og Osram”.

Ég var að skipta um Osram peru sem var sprungin hér heima og uppgötvaði þá nokkuð merkilegt. Osram og IKEA peran eru nákvæmlega eins. Nákvæmlega (fyrir utan nafnið að sjálfsögðu). Er nokkur ástæða til að kaupa Osram aftur? Mér finnst óþarfi að borga tvö eða þrefalt fyrir sama hlutinn af því að það er annað merki (brand) á honum.

Osram vs IKEA

Hægt er að smella á myndina fyrir stærri útgáfu.


Popularity: 6% [?]

Comments are closed.