020202 – 020212 – 10 ára brúðkaupsafmæli
2.2.2012 – 10:16 | No Comment

Þegar ég stóð í Seljakirkju og beið eftir að Ösp kæmi með Leifa föður sínum, og þá tilvonandi tengdaföður mínum, fyrir 10 árum vissi ég ekki hvað framtíðin bæri í skauti sér. Framtíðin var óskrifað …

Read the full story »
Óflokkað

Frank Gabríel

Daglega lífið

Vert að skoða

Almar Freyr

Home » Almar Freyr, Daglega lífið, Frank Gabríel

Flensubæli

Submitted by on 28.10.2009 – 21:21No Comment

Það er ekki búið að vera hátt á okkur risið undanfarna daga og vikur hérna í Álfkonuhvarfinu.

Ösp byrjaði á að leggjast flöt í flensu á þriðjudag í síðustu viku, Frank Gabríel lagðist svo á miðvikudagskvöldið með hvelli og ælu í hjónarúmið og Almar Freyr tók svo upp á því að fá hita og í bæði eyrun um helgina. Ég lagðist sjálfur á laugardaginn eftir að hafa verið slappur í lengri tíma.

Við vorum því öll saman hér um helgina og hættum okkur ekki út fyrir hússins dyr til að smita ekki aðra af þeim pestum sem voru að hrjá okkur.

Ása og Gunni ráku inn nefnið á sunnudag með krakkana þar sem þau voru í bænum og Frosti fékk að vera í pössun meðan þau fóru að útrétta, Frank og Almari til mikillar gleði.

Ösp fór í vinnuna á mánudag en við strákarnir vorum allir heima veikir. Hún kom heim í hádeginu til að leysa mig á barnavaktinni af þar sem ég var slappur og hálf illa haldinn. Ég fór þá upp í rúm og svaf fram á þriðjudagsmorgun. Telst til að ég hafi sofið í 17 tíma í svo gott sem einni lotu.

Þriðjudagurinn var svipaður; Ösp í vinnu, við strákarnir heima en Frank var orðinn nokkuð góður af sínum veikindum.

Í dag fóru Ösp og Frank  í vinnu og leikskóla en við Almar vorum heima.

Þessi flensa sem ég er með er frábrugðin þeim inflúensum sem ég hef fengið, ég hef ekki verið með mikla beinverki heldur hef ég verið með verki í liðum í höndum og fótum, hitinn hefur rokið upp og þegar ég tek hitalækkandi svitna ég eins og ég hafi stigið inn í sturtu. Þessu fylgir svo mikill hósti og kvef með stífluðu nefi.

Ég vonast til að stíga sem fyrst upp úr þessu því ég er kominn með nett leið á að vera heima, þó það hafi vissulega stytt stundirnar að vera heima með Frank og Almari því þeir eru endalaus uppspretta skemmtilegra leikja. Frank hefur verið hugfaginn af Lego kubbum undanfarið og byggir ýmsa skemmtilega hluti. Almar hleypur á eftir og brýtur og bramlar það sem Frank var að enda við að byggja. “Stóri bróðir – litli bróðir” syndromið strax byrjað.

Popularity: 1% [?]

Comments are closed.