Gullmolar
Það er erfitt að hugsa sér lífið eins og það var áður en Frank Gabríel og Almar Freyr fæddust. Hvað gerði maður eiginlega af sér kvölds og morgna og um helgar? Þeir sjá til þess að við erum á fullu allan þann tíma sem þeir eru vakandi.
Mig minnir að við Ösp höfum sofið út alla morgna (til kl 8 ca á virkum dögum og 11 um helgar), og kvöldin voru afslöppun fyrir framan sjónvarpið. Fórum jafnvel í bíó eða út að borða ef okkur datt það svona í hug.
Frank Gabríel er endalaus uppspretta gullkorna og skemmtilegra hugsana. Hann spáir mikið í hlutina og hvernig allt virkar og segir okkur svona upp og ofan af því sem hann kemst að. Ekki eru ályktanirnar alltaf réttar en þá svo sprenghlægilegar að við eigum í mestu vandræðum með okkur. Hann gerir marga spennandi hluti á leikskólanum og segir svo frá hvað hann og aðrir voru að gera þann daginn. Í síðustu viki hitti hann slökkviliðsmann á leikskólanum sem honum fannst mjög spennandi og þegar ég spurði hann hvað slökkviliðsmaðurinn hafi sagt var svarið “Ekkert, hann talaði bara við stóru krakkana”. Var semsagt nett sama þó slökkviliðsmaðurinn hafi ekkert sagt við hann, bara að sjá hann var upplifun dagsins.
Einn af gullmolunum sem datt út úr honum núna í vikunni var “kúluvöðvavettlingar. Kúluvöðvar er að vera sterkur (sbr Batman búning með kúluvöðvum). Kúluvöðvavettlingar eru boxhanskar.
Almar Freyr talar ekki mikið en hann er þeim mun aktívari í fótum og höndum. Hans uppáhald er að fá einhvern til að lyfta sér hjá dyrasímanum og svo “talar” hann í dyrasímann. Klifur og fikt er í öðru sæti yfir skemmtilegustu hlutina. Við þurfum að loka öllum hurðum þar sem hætta er á að hann geti klifrað upp á eitthvað í herberginu, hann vippar sér upp í hjónarúmið með því að stíga á kant og toga sig upp með náttborðinu. Er gríðarlega stoltur þegar hann er kominn upp. Sófinn er eitt hættulegasta húsgagnið á heimilinu því Almar Freyr notar hann sem hlaupabraut, upphækkun og framlengingu í aðra skemmtilega hluti. Fundum hann sitjandi í gluggakistunni bakvið sófann um helgina opnandi og lokandi glugganum. Hafði ekki miklar áhyggjur af því að detta út af annarri hæð drengurinn.
Þó Almar Freyr tali ekki mikið þá er hann farinn að mynda grunn að orðum og gera hljóð til að koma merkingu til skila. Hann er búinn að læra að segja “hæææææjjjjjj” (hæ), “óvvvvvvóvvvvv” (óó), “bæææææjjjjj” (bæ), “pa” (súpa), “ammm” (namm). Krúttlegast er þegar hann reynir að kalla á stóra bróður Frank Gabríel, þá kemur út úr honum einhver hljóðloka sem varla er hægt að aðgreina frá umli en þýðir samt Frank Gabríel.
Popularity: 1% [?]

“Fundum hann sitjandi í gluggakistunni bakvið sófann um helgina opnandi og lokandi glugganum.”
Snilld.