020202 – 020212 – 10 ára brúðkaupsafmæli
2.2.2012 – 10:16 | No Comment

Þegar ég stóð í Seljakirkju og beið eftir að Ösp kæmi með Leifa föður sínum, og þá tilvonandi tengdaföður mínum, fyrir 10 árum vissi ég ekki hvað framtíðin bæri í skauti sér. Framtíðin var óskrifað …

Read the full story »
Óflokkað

Frank Gabríel

Daglega lífið

Vert að skoða

Almar Freyr

Home » Pæling

Að vera ekki innfæddur Kópavogsbúi

Submitted by on 26.11.2009 – 19:043 Comments

Það er fyndið að búa í Kópavogi en vera samt ekki Kópavogsbúi. Eða amk ekki þannig Kópavogsbúi að ég skilji “lingóið” sem Kópavogsbúar nota.

Búandi í Kópavogi, reyndar í algjörum jaðri í Hvörfunum sem bæjarfélagið virðist varla telja með í Kópavog, þá fær maður bæklinga og sneppla sem auglýsa hinar og þessar skemmtanir hingað og þangað í bæjarfélaginu (lesist fyrir vestan Reykjanesbraut) á stöðum sem innfæddir Kópavogsbúar eiga að vita hvar eru en ég hef ekki hugmynd um hvar eru.

Ég komst að því á 17. júní sl., eftir að hafa búið í 3 1/2 ár í Kópavogi, hvar Rútstún er, en það er semsagt grasbalið við sundlaug Kópavogs í Kársnesi.

Í hólfinu í leikskólanum hjá Almari er auglýsing um einhverja jólaskemmtun sem fer fram á Hálsatorgi. Engar skýringar eru á hvar eða hvað Hálsatorg er. Bara sagt á Hálsatorgi. Hvernig á aðfluttur Kópavogsbúi að vita hvar Hálsatorg er??

Popularity: 5% [?]

3 Comments »

  • Ösp says:

    Nákvæmlega það sem ég hugsaði þegar ég sá þessa auglýsingu. Og ég er ekki ennþá búin að finna út úr því hvar þetta er.

  • Anna says:

    Ég er nú búin að búa í Kópavogi síðan ég var þriggja ára og ég hef aldrei heyrt um þetta torg. Hlýtur að vera einhver nýr staður.

  • Hanna says:

    þetta er nýja torgið á milli Byr sparisjóðs og Landsbanka/heilsugæslunnar sem var byggt yfir gjánna. Allir bestu staðirnir í Kópavogi eru í og við Kársnesið :) bara spyrja frænku :)
    kv. Hanna