Án titils
Mörg verk eftir þekkta listamenn eru án titils. Ágætt að skrifa eitt blogg án titils þó ég sé ekki að líkja mér við listamann.
Drattaðist loksins niður á Vinnumálastofnun í morgun og ætlaði að skrá mig verðandi atvinnulausann, en ég fékk uppsagnarbréfið afhent frá starfsmannastjórnum í eigin persónu hér heima í miðjum veikindunum.
Hefði getað sparað mér þá ferð, því ég, þrátt fyrir að vera bara verðandi atvinnuleysingi og námsmaður, virtist vita allt jafn vel og þessir svokölluðu “ráðgjafar” vinnumálastofnunar. Einu tvö ráðin sem ég fékk hjá þeim var að taka eitt fag eftir áramót (og þannig fresta útskrift um heilt ár) til að fá atvinnuleysisbætur eða bæta aukafagi við námið til að fá full námslán. Þessir slæmu kostir sýna sennilega þá stöðu sem námsmenn eru í missi þeir vinnuna.
————————————————–
Fjörið í á heimilinu eykst með hverjum deginum, Almar Freyr er á góðri leið með að verða sami grallarinn og Frank Gabríel. Almar Freyr klifrar upp á húsgögn, hoppar af sófaborði, fleygir sér milli sófa og hægindastóls og djöflast í stóra bróður við litla ánægju Frank Gabríels. Frank sagði í dag að “það er rosalega erfitt að vera stóri bróðir” eftir að Almar hafði lamið hann með mjólkurkexi og brotið lego-kubba turn (í hundraðasta skipti).
Almar Freyr var í 18 mánaða skoðun í dag og stóðst öll þroskapróf með prýði. Er í meðalagi í orðafjölda, hreyfigeta er góð og að kubba turn með lego-kubbum er meira en ætlast er til í þroskaviðmiði 18 mánaða. Hann fékk svo í bónus bólusetningarsprautu í rassinn.
————————————————–
Við fórum fjölskyldan í myndatöku í síðustu viku hjá Brosbörnum. Strákarnir voru auðvitað aðalmyndefnið en við Ösp fengum að vera með á nokkrum myndum. Töfrar Photoshop eru svo miklir að við lítum kannski bara ágætlega út á myndunum!
Það verður gaman að eiga fallegar og vel unnar ljósmyndir af strákunum, þó ég eigi fína vél er kunnátta mín í myndvinnslu metin í mínus stigum og svo vantar almennileg ljós til að fá góðar myndir. Kannski bætt úr því síðar.
————————————————–
Það er búið að vera sjúklega mikið að gera í skólanum undanfarnar vikur. Verkefnaskil búin að vera ansi stíf undanfarið en nú eru aðeins tvö verkefni eftir og svo prófin. Annað verkefnið er stórt challange, en það er vörn í próflausum áfanga. Vörn er annað orð yfir munnlegt próf. Það eru allir að fara á taugum yfir þessari vörn, ég ætti eflaust líka að vera að gera það en hér sit ég og blogga… dæs.
Prófin verða væntanlega miðlungs þetta árið, aðeins 3 stykki. Veit ekki hvort ég höndla svo fá próf. Fæ örugglega kvíðakast og klúðra þessu öllu.
Aðstæðurnar eru skrítnar núna. Í prófum hefur maður ekki þurft að hafa áhyggjur af neinu nema því að ná prófinu sem maður er að læra fyrir, en núna er alltaf að brjótast um í hausnum á manni áhyggjur af ástandinu eftir 1. febrúar sem er frekar truflandi.
————————————————–
Ég er nýbúinn að uppgötva töfralausnina Google Docs. Þvílík rjúkandi f**king snilld sem það er. Það hefur alltaf verið vandamál í hópverkefnum að senda þarf word skjal endalaust á milli með breytingum og ef tveir taka upp á því að skrifa á sama tíma er voðinn vís. Sameina þarf breytingarnar og hafa vakandi auga með að ekkert misfarist í því ferli. Google Docs aftur á móti bjóða upp á frumstæða ritvinnslu (sem þó dugir alveg) þar sem margir aðilar geta verið að skrifa á sama tíma í sama skjali og textinn uppfærist dýnamískt. Þegar hver og einn er búinn að skrifa lokar hann bara netglugganum og skjalið stendur eftir í því ástandi þegar næsti opnar skjalið. Ef annar aðili kemur að skjalinu sér hann svo breytingarnar og það sem er verið að skrifa. Fjögur verkefni hafa nú verið unnin á þennan máta og verður að segjast að þessi leið, Google Docs, eru mjög snotur lausn á mörgun vandamálum hópverkefna.
Popularity: 1% [?]

