Eftir ár…
Ohh hvað seinnipartur nóvember og fyrrihluti desember er leiðinlegur tími tími fyrir námsmenn. Verkefnavinnan er að drepa mann þessa dagana, ritgerðir og leyst verkefni renna út á færibandi til kennaranna, auðvitað allt á saman tíma. Eftir aðeins 2 vikur byrja svo prófin og allt sem þeim fylgir.
Desember er skemmtilegur tími fyrir þá sem ekki eru í skóla. Jólatónleikar, jólahlaðborð, jólaföndur. Ég get ekki beðið eftir að klára skólann og fá að njóta desember með Ösp og strákunum.
Popularity: unranked [?]

