BBC World Service – FM 94,3 – Vin í eyðimörkinni
Þegar ég er alveg kominn með upp í háls af íslenska fréttabullinu skipti ég yfir á BBC World Service í útvarpinu. Að stilla útvarpið á FM 94,3 er svo frískandi og uppbyggjandi. Að þurfa ekki að hlusta á fréttir af umræðum í þinginu af Icesave, skattahækkunum, niðurskurði og hreppavæli heldur alvöru vandaða fréttatengda dagskrá unna af alvöru fréttamönnum BBC gerir mér ótrúlega gott.
Ég heyrði t.d. viðtal á BBC World Service við breskan mann sem staddur var í Mumbai á hótelinu sem varð fyrir árás hryðjuverkamanna fyrir rúmu ári síðan. Það var átakanlegt að hlusta á viðtalið en gæði þess voru þannig að ég gat ekki skipt af því þó ég væri kominn á áfangastað áður en það kláraðist.
Með því að hlusta hef ég fræðst um breytingar á rafkerfinu á Möltu, forsetakosningar í einhverju landi sem ég man ekki hvað heitir, tækni til að framleið raforku á “köldum” svæðum með því að dæla vatni ofan í bergið, úrslit í rúgbí í Ástralíu og fleira skemmtilegt.
Popularity: 2% [?]

