Eitthvað margir dagar til jóla
Eftir stífan lestur í lögfræði alla helgina er farið að snjóa í hausnum á mér þó ágætis veður sé úti og ekkert frost.
Þetta er sama bilunin í hverri próftörn. Legið yfir bókum, glærum og gömlum prófum dögum saman þangað til allt er komið í hrærigraut, þá er farið í prófið og vonað það besta. Strax á eftir er byrjað á næsta fagi og rútínan endurtekur sig.
————————————————
Það er farið að styttast hressilega í jólin. Frank Gabríel er orðinn ansi mikill jólastrákur, spennan hjá honum er svo mikil. “Eru jólin á morgun? Eru jólin þegar er frí í leikskólanum? Eru jólin á nammidaginn?” Það eru forréttindi að fá að fylgjast með barni upplifa undirbúning jólanna.
————————————————
Mínir ættingjar geta borið vitni um hversu forvitið (og allt að því óþolandi) barn ég var. Alltaf spyrjandi og spáði mikið í hlutina. Hefur kannski komið sér vel því ég er fullur af fánýtum fróðleik.
Frank Gabríel gerði mömmu sína algjörlega kjaftstopp í gær. Hann var að spá í hvort að rigningin væri köld. Ösp hélt það jú, rigning er köld. En ef snjór er kaldur, og rigning er köld, hvernig getur hún þá brætt snjóinn?
Popularity: 7% [?]

