020202 – 020212 – 10 ára brúðkaupsafmæli
2.2.2012 – 10:16 | No Comment

Þegar ég stóð í Seljakirkju og beið eftir að Ösp kæmi með Leifa föður sínum, og þá tilvonandi tengdaföður mínum, fyrir 10 árum vissi ég ekki hvað framtíðin bæri í skauti sér. Framtíðin var óskrifað …

Read the full story »
Óflokkað

Frank Gabríel

Daglega lífið

Vert að skoða

Almar Freyr

Home » Almar Freyr, Daglega lífið, Frank Gabríel, Pæling

Nú mega jólin koma!

Submitted by on 15.12.2009 – 16:45No Comment

Það er alltaf léttir þegar prófin eru búin. Sérstaklega prófin í desember því þau halda jólaskapinu og tilhlökkuninni í heljargreipum. Maður vogar sér ekki að hlakka til jólanna né njóta aðventunnar fyrr en síðasti punkturinn er settur á blað í síðasta prófinu.

Það voru 3 próf og ein vörn sem voru á dagskránni í þetta skiptið. Mikil breyting frá síðasta vetri þar sem 6 próf voru þreytt á hvorri önn. Ein einkunn komin í hús, hinar koma væntanlega rétt fyrir jól eða milli jóla og nýárs.

—————————————————————

Frank Gabríel er búinn að vera jólaskapi síðan í byrjun desember. Í gær var jólaballið í leikskólanum og fyrir það var greinilega búið að æfa öll lögin í bókinni. Hann er því búinn að vera eins og gangandi jólaskemmtun undanfarna viku, syngjandi um Gunnu á nýju skónum, mömmu sem kyssir jólasvein, héraskinn sem hittir jólasvein og sjó og land.

Það er alltaf talað um að upplifa jólin í gegnum börnin, ég er núna að sjá raunverulega í fyrsta skipti einlægan áhuga og spenning hjá Frank Gabríel. Honum hefur auðvitað þótt gaman á jólunum en hann hefur aldrei fattað hlutina eins og hann er að gera núna. Kíkja í skólinn – spyrja um jóladagatalið – borða ekki skó-rúsinur því það er “Grýlu-bragð” af þeim, skoða jólaskreytingar og -ljós með áhuga. Það er allt að smella í ár í spenningnum.

—————————————————————

Ég tók mér pásu frá lærdómi síðasta laugardagskvöld og við Ösp fórum með saumó á jólahlaðborð hjá Argentínu. Nammi gott. Kvöldið var frábært, góður matur, frábær félagsskapur og mikið hlegið.

Vorum heppin að vera akkúrat þessa helgi en ekki næstu því ein af óléttínunum í hópnum fór svo af stað á sunnudag og eignaðist strák í gærmorgun. Það fjölgar jafnt og þétt í barnahópnum, aðeins Vala og Bjarki ennþá með eitt barn en annað á leiðinni þannig að þau munu ekki lengi skera sig úr.

Popularity: 3% [?]

Comments are closed.