Prófin handan við hornið
Þá gengur í garð enn ein próf-törnin hjá mér. Sem betur fer sú næst síðasta við HA.
Núna í desember tek ég “aðeins” þrjú próf, en þau hafa verið á bilinu 5-6 í hvert skipti þannig að þetta er hálfgert lúxuslíf. Hefði getað náð að sleppa með tvö próf ef ég hefði náð sumarprófinu í fjármálum 3 í ágúst, en það fór eins og það fór.
Það er kannski rangt að tala um þrjú próf, því ég var í fjórum fögum og eitt þeirra var “próflaust”, en gríðarlegt verkefnaálag fyrir vikið og svo þurfti að verja verkefnin okkar og svara fyrirspurnum kennara í 45 mínútur þannig að próflaust var það ekki alveg.
Þrátt fyrir góðan vilja og ætlun að breyta til í þetta skiptið enda ég alltaf á að læra meirihluta námsefnisins á lokametrunum fyrir próf með aðstoð gamalla prófa.
Popularity: unranked [?]

