Hótel klárt í Virginu, Fairfax
Eins og flestir vita væntanlega erum við að fara til USA í ágúst nk. í brúðkaup hjá henni Maleu skiptinemasystur. Verðum nokkuð mörg á ferð, en mamma, pabbi, Robbi og Anna ætla líka að fara í brúðkaupið.
Gengum frá miðakaupum í október í fyrra því mamma var að fara á límingunum yfir því að “aðeins” 10 mánuðir væru í ferðina og eins gott að tryggja sér sæti áður en seldist upp… akkúrat.
Vorum ekki viss hvernig ætti að ganga frá gistingu. Vildum helst leigja hús á svæðinu en þau virðast ekki vera bókan-/finnanleg með löngum fyrirvara þannig að þetta hefur hangið yfir okkur. Ösp er búin að vera dugleg að leita á netinu og hefur verið að skoða ýmsa kosti en það hefur alltaf strandað á því sama; kostnaði.
Hún fann svo góðan kost sem er hótel í eigu Marriott keðjunnar, Residence Inn Fair Lakes. Bjóða upp á tveggja herbergja íbúðir með eldhúsi, tveimur baðherbergjum o.fl. á $179 nóttina. Eina vandamálið var að íbúðin er gefin upp fyrir 5 en við erum 6 með strákunum (Robbi og Anna fara til Boston áður en þau koma til Fairfax þannig að þau gista ekki með okkur allan tímann). Ég ákvað því að hringja út í morgun og athuga hvort að 6 gætu gist í íbúðinni, ef tveir af gestunum eru börn og annar þeirra yrði í rimlarúmi. Það gekk og áður en ég vissi af var ég búinn að panta gistingu fyrir okkur á þessu hóteli.
Það er fínt að vera komin með gistingu allan tímann meðan við erum úti, en við erum þó ekki hætt að skoða aðra gistimöguleika ef annað og betra skyldi detta upp í hendurnar á okkur.
Residence Inn Fair Lakes er mjög vel staðsett, það er stutt til Washington DC, mjög stutt í risa verslunarmiðstöð (auðvitað var það það fyrsta sem Ösp tékkaði á
), stutt í Six Flags skemmtigarð og auðvitað er svo stutt heim til foreldra Maleu.
Næsta verkefni tengt ferðinni er að finna bílaleigubíl(a) og ákveða hvernig þeim málum á að vera háttað. Einn stór bíll, einn stór bíll og einn lítill, tveir miðlungs eða…. já. Þurfum að spá í það.
Síðasta verkefnið er svo að finna út hvernig á að fjármagna þennan fjanda.
Flugið er oftast það sem vefst fyrir fólki en auðvitað er það allt hitt sem er aðal kostnaðurinn. Gisting, bílaleigubíll, neysla og verslunarleiðangrar. Kannski maður kljúfi það bara bótum næstu 18 mánuðina eftir ferðina??
Popularity: 3% [?]

