020202 – 020212 – 10 ára brúðkaupsafmæli
2.2.2012 – 10:16 | No Comment

Þegar ég stóð í Seljakirkju og beið eftir að Ösp kæmi með Leifa föður sínum, og þá tilvonandi tengdaföður mínum, fyrir 10 árum vissi ég ekki hvað framtíðin bæri í skauti sér. Framtíðin var óskrifað …

Read the full story »
Óflokkað

Frank Gabríel

Daglega lífið

Vert að skoða

Almar Freyr

Home » Frank Gabríel

Pabbi, vonandi saknarðu okkar ekki of mikið!!!

Submitted by on 25.2.2010 – 15:292 Comments

Er þá kominn til Akureyrar á fjarnemadaga. Skóli í dag, tveir fundir með leiðbeinanda á morgun fyrir og eftir hádegi og svo er ég búinn. Kem samt ekki í bæinn fyrr en á laugadag þar sem farið mitt er í tímum á laugardagsmorgun.

Þegar ég kom í skólann í dag og opnaði póstinn var þessi póstur í boxinu frá Ösp:

Þegar ég sótti FGM í leikskólann í gær og minnti hann á að pabbi væri að fara til Akureyrar, sagði hann strax “ég ætla að teikna handa honum mynd af okkur svo hann þurfi ekki að sakna okkar”. Hann settist og fór að teikna þegar hann kom heim, en þar sem gaurar voru á pallinum niðri með mikil læti varð hann að kíkja hvað væri um að vera. Hann sagði við þá “strákar, viljiði hafa aðeins minni læti því ég er að teikna mynd fyrir pabba, hann er að fara á hótel”. Strákarnir samþykktu það hins vegar ekki og Frank varð soldið leiður, en svo var hann kominn í leik við þá og myndin gleymdist.

En í morgun þegar hann sá þig fara inn í bílinn varð hann allt í einu hrikalega sorgmæddur þegar hann fattaði…. “ég gleymdi að gefa honum mynd”. Þannig að það fór allt í gang, mamma útskýrði hvernig hún myndi setja myndina inn í tölvuna og senda pabba. En gaurinn fór í þrjóskukast á meðan listaverkið var í sköpun og vildi ekki teikna fólkið, mamma varð að gera það. Og úr varð þetta listaverk: Pabbi, vonandi saknarðu okkar ekki of mikið!!!

Popularity: 4% [?]

2 Comments »