Google books
Þvílíkur life-saver sem Google Books er fyrir mig í BS ritgerðarskrifunum.
Ég hef selt flestallar námsbækurnar í lok hvers námskeiðs og á því ekki fjármálabækurnar sem ég hef notað í náminu eða bækur um vöruþróun. Núna þegar kom að því að skrifa ritgerðina þurfti ég að finna fræðilegar heimildir fyrir það sem ég er að skrifa og hef ég notað Google Books óhikað til þess. Fæ sýnishorn úr bókum á síðunni og nota svo 3 netskoðara til að nálgast kaflana sem ég þarf, því kerfið virkar þannig að ég sé ca 3-4 blaðsíður í röð og svo vantar 3-4 síður inn á milli. Með því að nota svona marga netskoðara eru mismunandi síður teknar út og ég get nálgast efnið í heild með smá þolinmæði. Ég náði mér t.d. í 17 bls úr fjármálabók í dag um núvirði og innri vexti og gat þannig skrifað kafla um þessi hugtök og notað formúlur úr köflunum í útreikninga.
Popularity: 6% [?]

