020202 – 020212 – 10 ára brúðkaupsafmæli
2.2.2012 – 10:16 | No Comment

Þegar ég stóð í Seljakirkju og beið eftir að Ösp kæmi með Leifa föður sínum, og þá tilvonandi tengdaföður mínum, fyrir 10 árum vissi ég ekki hvað framtíðin bæri í skauti sér. Framtíðin var óskrifað …

Read the full story »
Óflokkað

Frank Gabríel

Daglega lífið

Vert að skoða

Almar Freyr

Home » Daglega lífið

Páskar og stutt í ritgerðarskil

Submitted by on 5.4.2010 – 13:29No Comment

Þá eru páskarnir að kveðja, síðasti dagurinn í dag.

Páskarnir hafa verið hálf daprir hjá mér, ég hef setið við og skrifað í BS-ritgerðinni eins og ég hef getað. Það hefur verið lítil skemmtun í mér fyrir fjölskylduna, ég pirraður og stúrinn og vil enga truflun sem er frekar erfitt ástand þegar allir eru heima í fríi og það þarf að hafa ofan af fyrir tveimur mjög fjörugum gormum. Til að gefa mér skrif-frið fóru fóru þau á föstudaginn í bústað til ömmu og afa hennar Aspar með tengdó og voru yfir nótt.

Ég á að skila ritgerðinni 19. apríl eða 10. maí. Mér sýnist að ég nái ekki fyrri skilum þannig að ég set allan kraft í að klára fyrir mánaðamótin til að geta sent fyrirtækinu sem ég er að skrifa fyrir eintak til yfirlestrar og fengið umsögn áður en ég geng endanlega frá skilaeintakinu og sendi norður.

——————————-

Þegar Frank Gabríel vaknaði í gærmorgun voru páskaeggin á furðulegan máta horfin og í staðin komin vísbending um hvert þau gætu hafa farið. Frank hafði gaman af þessu því hann er mikið fyrir að fást við ráðgátur. Páskaeggin fundust að lokum inni í þvottavélinni eftir að hann hafði fylgt 4 vísbendingum um íbúðina. Það voru sáttir bræður sem hökkuðu í sig súkkulaði í gærmorgun.

——————————-

Maggi bróðir og Arna eru búin að kaupa sér íbúð í Búseta og eru að flytja á þriðjudaginn í Frostafold. Búin að gefast upp á að leigja smáholur hér og þar í bænum fyrir stórfé. Við fórum til þeirra í gærdag að skoða íbúðina og hún leit mjög vel út, snyrtileg og fín. Svo er örstutt frá blokkinni sem þau voru að kaupa í yfir til ömmu Gyðu og afa Magga. Maggi bróðir sagði líka við þau þegar þau komu að skoða “ef þið viljið létta undir með okkur eru fimmtudagarnir lausnir“. Hann er engum líkur!!

Mamma og pabbi eru í Kína og koma heim á fimmtudaginn. Það er búin að vera mikil fart á þeim úti, eru búin að fljúga milli þriggja borga, skoða margt og skemmta sér mjög vel. Ég held að þau hafi viljað hafa meiri tíma en 2 vikur til að skoða allt sem í boði er, enda Kína stórt með mikla sögu.

Robbi bróðir var hjá okkur í páskamat í gær, buðum upp á Ali hamborgarhrygg sem því miður var vel saltur, en góður að öðru leiti. Með meðlæti og sósu þá slapp það allt til.

Popularity: 16% [?]

Comments are closed.