020202 – 020212 – 10 ára brúðkaupsafmæli
2.2.2012 – 10:16 | No Comment

Þegar ég stóð í Seljakirkju og beið eftir að Ösp kæmi með Leifa föður sínum, og þá tilvonandi tengdaföður mínum, fyrir 10 árum vissi ég ekki hvað framtíðin bæri í skauti sér. Framtíðin var óskrifað …

Read the full story »
Óflokkað

Frank Gabríel

Daglega lífið

Vert að skoða

Almar Freyr

Home » Pæling, Stjórnmál

Það er verið að blekkja okkur.

Submitted by on 21.4.2010 – 14:28No Comment

Íslensk stjórnvöld (bæði fyrir og eftir stjórnarskipti í feb 2009), Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn, Bretar, Hollendingar og allir aðrir sem koma að “björgun” Íslands úr efnahagsvandræðunum eru að blekkja íbúa landsins og telja þeim trú um að það sé hægt að koma efnahagnum í gang aftur. Það er, tel ég, rangt.

Í morgun hlustaði ég á BBC World Service einu sinni sem oftar (ég get ekki hætt að benda á hversu mikil snilld þessi stöð er). Þar var verið að fjalla um efnahagsaðstoð við Grikkland sem Evrópusambandið og AGS eru að bjóða og hvaða áhrif þetta myndi hafa á grískt efnahagslíf, hvort að þetta væri neistinn sem þarf til að kveikja aftur á efnahagslífinu.

Niðurstaða sérfræðinganna sem BBC talaði við var öll eiginlega á eina leið: Vextirnir sem Grikkir þurfa að borga af lánunum – sem eingöngu fara inn í efnahaginn þeirra til að koma efnahagslífinu aftur í gang – munu drepa niður alla þá eftirspurn, vöxt og ágóða sem lánin veita á annað borð. Takið eftir að þessi lán fara beint í að koma efnahagslífinu aftur í gang. Vextirnir munu valda því að skera þarf niður opinbera þjónustu, framkvæmdir, ellilífeyri og annað sem grísk stjórnvöld greiða í dag.

Nú kunna einhverjir að halda að vextirnir sem standa Grikkjum til boða séu háir og ósanngjarnir. En eru þeir það? Þetta eru sömu vextir og Íslendingar standa frami fyrir á Icesave skuldinni og á lánum AGS/Norðurlandanna. Vextir sem Íslendingum er sagt að séu mjög góðir og það besta sem býðst.

Ekkert af lánum AGS/Norðurlandanna fer í að koma efnahag Íslands í gang aftur heldur fara lánin öll í að greiða eldri skuldir og styrkja gjaldeyrisforða Seðlabankans. Þessi lán gagnast kannski á öðrum sviðum en sem efnahagshvetjandi, redda okkur kannski fyrir horn með aðra hluti.

Hvað varðar lán Breta og Hollendinga vegna Icesave þá fer ekkert af þessum lánum í að koma efnahag Íslands í gang, ekkert af þessum lánum fer í að redda okkur fyrir horn, ekkert af þessum lánum hjálpar Íslendingum á einn eða neinn hátt. Þessi lán eru ryksuga á íslenskt hagkerfi, íslenskt efnahagslíf, íslensk fyrirtæki og íslenskar fjölskyldur.

Munurinn á Grikklandi og Íslandi hvað varðar lánin er að Grikkir fá eingöngu lán til að koma efnahagnum í gang. Íslendingar fá tvennskonar lán, annarsvegar til að redda okkur fyrir horn og hinsvegar til að gera upp skuldir einkarekins banka.

Grikkir ráða ekki við að greiða vexti af láni sem þó á eingöngu að koma efnahagnum í gang. Hvernig í ÓSKÖPUNUM eiga Íslendingar að fara að því að greiða vexti af lánum sem hjálpa efnahag landsins ekki neitt??? Það er ekki hægt. Það er ekki hægt.

Popularity: 7% [?]

Comments are closed.