020202 – 020212 – 10 ára brúðkaupsafmæli
2.2.2012 – 10:16 | No Comment

Þegar ég stóð í Seljakirkju og beið eftir að Ösp kæmi með Leifa föður sínum, og þá tilvonandi tengdaföður mínum, fyrir 10 árum vissi ég ekki hvað framtíðin bæri í skauti sér. Framtíðin var óskrifað …

Read the full story »
Óflokkað

Frank Gabríel

Daglega lífið

Vert að skoða

Almar Freyr

Home » Daglega lífið

Lokasprettur

Submitted by on 5.5.2010 – 15:19No Comment

Er núna á loka-lokaspretti í skólanum. Síðasta prófið á föstudag kl 14 og skil á ritgerðinni á mánudag.

Það er því nóg að gera hjá mér -og okkur öllum í fjölskyldunni- við að láta þetta allt ganga upp og púsla dögunum saman.

Leiðbeinandinn stakk af til Belize í S-Ameríku í 11 daga og skildi mig eftir hálf umkomulausan á meðan með ritgerðina. Ég gerði allt sem ég taldi að ég ætti að gera á þeim tíma en var svo orðinn stopp og klukkan tikkaði. Leiðbeinandinn kom heim á mánudagskvöldið, las yfir ritgerðina mína í gærmorgun og ég fékk nóg af nýjum verkefnum að kljást við, en þá var ég kominn í tímaþröng því lögfræðiprófið er eftir aðeins 2 daga. Ég vann aðeins í ritgerðinni í morgun, sendi hana á leiðbeinandann og einbeiti mér núna að því að læra fyrir lögfræðina. Ritgerðin verður að bíða fram á föstudag kl 17. Það verður svo allt kapp lagt á að klára fyrir sunnudag þannig að grænt ljós fáist á sunnudagskvöld fyrir prentun. Krossa fingur að það gangi eftir.

Popularity: 4% [?]

Comments are closed.