Ritgerðin
Þá er komin vika frá því að ég skilaði BS ritgerðinni. Sett í póst kl 15.57 mánudaginn 10. maí.
Það var meira en stress í gangi síðustu dagana fyrir skil. Próf í lögfræði kl 14 á föstudeginum fyrir skilin þannig að dagana þar áður hafði ég notað til að læra fyrir það próf og ritgerðin beið frá þriðjudegi til föstudagskvölds. Þegar ég tók aftur til við að vinna í ritgerðinni beið yfirfarið eintak frá leiðbeinandanum með yfir 25 athugasemdum og tugum breytinga-tillagna (track-changes).
Athugasemdirnar leiddu til þess að allan laugardaginn skrifaði ég viðbætur og ítarlegar í fræðilega kaflann og aðra kafla fram að greiningar kaflanum þar sem útreikningar og annað skemmtilegt fór fram.
Allur sunnudagurinn frá snemma að morgni fram að miðnætti fór í útreikninga í excel sem þvældust fram og aftur; rekstrargreiningu, afkomugreiningu, næmnigreiningu, núllpunktsgreiningu, núvirðingu og fleira sem ég þurfti að finna út á staðnum þar sem ég hafði ekki tekið áfanga sem tók á mörgum af þessum greiningum.
Ég hélt að ég myndi fá taugaáfall þarna seinnipartinn á sunnudeginum en með góðri hjálpa frá Ingólfi skólafélaga mínum og ákaflega löngu símtali til leiðbeinandans þá höfðust allir útreikningar að lokum ásamt tillögukafla, umræðukafla, niðustöðukafla og kafla um hagnýtt gildi.
Á mánudagsmorgni þurfti ég að fá grænt ljós frá leiðbeinanda á að allt væri klárt og voru það ansi stressandi klukkutímar þegar beðið var eftir því. Prentheimild kom í hádeginu og þá var farið í það verkefni að fá prentun. Það reddaðist sem og gormun á ritgerðinni.
Eins og áður sagði var pakki sem innihélt fjögur eintök af ritgerðinni settur í póst kl 15.57. Formlegur skilafrestur var lokun pósthúsa en umsjónarmaður lokaverkefna hafði áður sagt að það væri varla sanngjarnt að fjarnemar hefðu tveimur tímum lengri skilafrest en staðarnemar og því var það kappsmál hjá mér að koma ritgerðinni í póst fyrir kl 16.
Það tók tíma að átta sig á að þetta væri virkilega búið og engin fleiri verkefni að ljúka. Það var ekki fyrr en á fimmtudag sem ég gat slappað almennilega af og hætt að hugsa um skólann. Fékk reyndar smá martröð á laugardagsnóttina og vaknaði alveg rjúkandi reiður yfir að þurfa að bæta kafla inn í ritgerðina…
Popularity: 12% [?]

