020202 – 020212 – 10 ára brúðkaupsafmæli
2.2.2012 – 10:16 | No Comment

Þegar ég stóð í Seljakirkju og beið eftir að Ösp kæmi með Leifa föður sínum, og þá tilvonandi tengdaföður mínum, fyrir 10 árum vissi ég ekki hvað framtíðin bæri í skauti sér. Framtíðin var óskrifað …

Read the full story »
Óflokkað

Frank Gabríel

Daglega lífið

Vert að skoða

Almar Freyr

Home » Daglega lífið, Pæling, Vert að skoða

Skólinn búinn. BÚINN.

Submitted by on 31.5.2010 – 23:19No Comment

Þá er skólinn víst formlega búinn. Alveg búinn. Búinn búinn. Síðasta einkunnin kom í dag og var það einkunnin fyrir BS ritgerðina. Þá get ég slappað alveg af og beðið eftir prófskírteininu mínu og gráðunni minni: viðskiptafræðingur.

Einkunnin fyrir ritgerðina fór fram úr mínum björtustu vonum; fékk 8,5. Er hreinlega í skýjunum. Aðeins tæpum 3 vikum fyrir skiladag var ástandið þannig á ritgerðinni, að mati leiðbeinandans, að hann ráðlagði mér að skoða þann möguleika að skila í ágúst. Og svo fór hann í 12 daga til útlanda án síma- og tölvupóstssambands. Ég var við það að fá taugaáfall. Ég mátti ekki við því að fresta útskrift um 2 mánuði. Því var allt sett á fullt, ég vann sleitulítið í ritgerðinni í 17 daga (þurfti að nota 2 daga í að læra fyrir og taka próf í lögfræði þarna í mesta stressinu). Það var skrifað frá morgni til kvölds, reiknað, skrifað, reiknað og skrifað og vonað að það væri á réttri braut meðan leiðbeinandinn væri erlendis, því væri þetta ekki í réttri braut væri of seint á breyta og laga þegar hann kæmi heim, aðeins 6 dögum fyrir skiladag ritgerðarinnar.

Sem betur fer var það sem ég skrifaði meðan leiðbeinandinn var erlendis á réttri braut þannig að þegar hann fékk ritgerðina í hendur til yfirferðar var ekki sett út á neitt stórvægilegt, heldur komið með ábendingar um hluti sem mættu vera ítarlegri og svo viðbætur í kafla þar sem ég hafði ekki sett öll atriði inn sem þurftu að vera.

Að hafa náð þessum árangri, að fá 8,5 eins og áður sagði, er meira en ég gerði mér vonir um. Þar sem ég var í tímaþröng og vann þetta eftir bestu getu á þeim tíma sem ég hafði bjóst ég allt eins við 5 í einkunn. Ég hefði reyndar orðið ógeðslega fúll en 5 var samt möguleiki sem ég gerði allt eins ráð fyrir. Ég taldi mig vera með ritgerð upp á a.m.k. 7 en vonaðist eftir hærri einkunn. Hefði orðið sáttur með 8 og er því ótrúlega ánægður með 8,5. Meðaleinkunn fyrir öll BS verkefni sem skilað var við deildina er 7,76 og ég er því langt yfir því. Það eru sex nemendur með 8,5, fjórir með 9 og einn með 9,5 þannig að þetta er með hærri einkunnum sem voru gefnar. Með 7,5 og 8 voru níu (með hvora einkunn), sjö með 7 og svo fáir með einkunnir þar fyrir neðan.

———————————————

Að hafa náð þessu öllu, náminu á 3 árum, ritgerðinni “more and less” á 3 vikum og annað næst með góðri aðstoð eða samvinnu. Ösp hjálpaði óendanlega mikið með stuðningi og umsjón heimilisins, Ingólfur og Hanna Björg skólafélagar mínir tóku þátt í mörgum skólaverkefnum og Gestur útvegaði glósur og kom mér af stað í stærðfræðinni í upphafi. Það voru þó tveir nánir vinir mínir sem komu mér að mestu notum í náminu og redduðu reikningsfögunum algjörlega; Texas Instruments TI-89 Titanium og Texas Instruments TI-Nspire CAS.

Popularity: 10% [?]

Comments are closed.