F24 – Freyjubrunnur 24
2.3.2012 – 16:30 | Comments Off

Þá sér fyrir endann á byggingarferlinu á Freyjubrunni 24 í Úlfarárdal, eða Úlfarsfelli eða hverfinu við hliðina á Grafarholti eins og við Ösp erum farin að kalla hverfið. Við áttum að fá afhent skv. kauptilboði …


Read the full story »
Óflokkað

Frank Gabríel

Daglega lífið

Vert að skoða

Almar Freyr

Home » Pæling, Stjórnmál

Spurningin sem engin getur svarað

Submitted by on 5.5.2010 – 20:27One Comment

Félagsmálaráðherra er að fara setja lög á gengistryggð bílalán. Samkvæmt lögunum á að lækka lánin niður í einhverja óskilgreina tölu og bæta 15% ofaná upphæðina sem eftir stendur vegna “hagstæðari vaxtakjara sem lántakendur nutu fyrir fall krónunnar og þeirrar áhættu sem fólst í töku gengistryggðra lána” eins og stendur í fréttinni á vef Félagsmálaráðuneytisins.

Ég tók lán í lok febrúar 2008 og naut því “hagstæðari vaxtakjara” í heilar 3 vikur…

Ýmsar vangaveltur hafa verið um útfærslu á þessari niðurfærslu, t.d. hefur verið nefnt að miðað verði við 110% af markaðsverði bíls og svo bætt 15% ofan á það.

Og þá að spurningunni sem engin getur svarað: Þeir sem frystu lán haustið 2008 og fram á 2009, þeir sem hafa látið greiðsluaðlaga lánin sín eða lengja þau hafa frestað niðurgreiðslu á höfuðstól. Á að færa þau lán niður í 110% + 15% álag, alveg eins og þeirra sem hafa greitt samviskusamlega af uppreiknuðum lánum miðað við gengisskráningu, hafa greitt án þess að láta “frysta”, lengja eða greiðsluaðlagað?

Ef já, það á að færa öll lán niður í sömu prósentu m.v. markaðsverð með sama álagi, þá er verið að taka þá sem hafa greitt allt eins og “átti” að greiða í vel þurrt rassgatið. Ég lýsi því hér með eftir einhverjum sem getur svarað þessari spurningu um lækkun lánanna.

Frumvarp um greiðsluaðlögun bílalána lagt fyrir Alþingi á næstu dögum

30.4.2010

Árni Páll Árnason, félags- og tryggingamálaráðherra, kynnti á fundi ríkisstjórnar í morgun frumvarp til laga um tímabundna heimild til greiðsluaðlögunar bílalána til einstaklinga. Frumvarpið verður lagt fyrir Alþingi á næstu dögum.

Greining sem Seðlabanki Íslands gerði nýlega sýnir að greiðslubyrði bílalána vegur afar þungt í skuldum íslenskra heimila og ógnar í mörgum tilvikum húsnæðisöryggi fólks. Í greiningunni felst skýr niðurstaða um að engin einstök aðgerð sé árangursríkari til þess að létta skuldabyrði þeirra sem eru í mestum vanda en greiðsluaðlögun bílalána. Með henni megi forða mörg þúsund einstaklingum og fjölskyldum frá mjög alvarlegum greiðsluerfiðleikum.

Gengistryggð lán hafa hækkað allt að 80% meira en verðtryggð lán til bílakaupa. Með fyrirhuguðum aðgerðum stjórnvalda verður þessi umframhækkun tekin til baka að stærstum hluta. Þó verður reiknað 15% álag á lánin vegna hagstæðari vaxtakjara sem lántakendur nutu fyrir fall krónunnar og þeirrar áhættu sem fólst í töku gengistryggðra lána.

Samkvæmt frumvarpinu getur lækkun á höfuðstól bílaláns aldrei numið hærri fjárhæð en 3 milljónum króna.

Komi til þess að lánveitandi leysi til sín bifreið skuldara en eftirstöðvar lánsins nema hærri fjárhæð en söluverð bifreiðarinnar er kveðið á um að lánveitandi geti ekki gengið að íbúðarhúsi skuldarans til að innheimta kröfur sínar. Greiði skuldari helming skuldarinnar á næstu þremur árum skulu eftirstöðvarnar falla niður.

Gert er ráð fyrir að lánveitandi beri allan kostnað vegna afgreiðslu umboðsmanns skuldara á skilmálabreytingunni.

http://www.felagsmalaraduneyti.is/frettir/frettatilkynningar/nr/4981


Popularity: 5% [?]

One Comment »

  • Guðjón says:

    Ég held að þetta sé bara enn ein froðan frá Samspillingunni, svona eins og 50% starf með bótum. Svoldið svipað og að pissa í buxnavasann og beiskt á bragðið.

    Þetta á örugglega ekki eftir að hjálpa mikið. Ég er búinn að borga af mínum bíl í á fimmta ár og sér ekki högg á vatni, upphæðin er nánast sú sama og þegar ég tók lánið. Ætli það hækki ekki bara um 15% í kjölfarið á þessu “úrræði”?