020202 – 020212 – 10 ára brúðkaupsafmæli
2.2.2012 – 10:16 | No Comment

Þegar ég stóð í Seljakirkju og beið eftir að Ösp kæmi með Leifa föður sínum, og þá tilvonandi tengdaföður mínum, fyrir 10 árum vissi ég ekki hvað framtíðin bæri í skauti sér. Framtíðin var óskrifað …

Read the full story »
Óflokkað

Frank Gabríel

Daglega lífið

Vert að skoða

Almar Freyr

Home » Stjórnmál

Er þjóðin bara ekki búin að gefast upp?

Submitted by on 14.6.2010 – 22:40No Comment

Steingrímur J. Sigfússon sagði í eldhúsdagsumræðum í kvöld að endurreisnin gangi vel og “að verkefnið væri að takast”.

Ég er ósammála honum. Ég nenni samt ekki að pirra mig á því eða koma með rök á móti. Ég sem hef yfirleitt haft sterkar skoðanir og getað fært fyrir þeim rök er kominn á þann stað að mig langar bara að gráta yfir ógæfu Íslands, sem felst ekki eingöngu í algjöru efnahagshruni, stjórnsýsluhruni og trausthruni. Ógæfan felst ekki síður í algjörlega óhæfum stjórnmálamönnum og -leiðtogum sem eru ekki að gera neitt rétt eða til hagsbóta fyrir íbúa landsins.

Vísir, 14. jún. 2010 21:53

Steingrímur: Verkefnið er á góðri leið með að takast

Steingrímur J. Sigfússon.
Steingrímur J. Sigfússon.

Steingrímur J. Sigfússon, fjármálaráðherra og formaður Vinstri grænna, segir Ísland á góðri leið og margt hafi áunnist frá því eftir hrun. Hann benti á að atvinnuleysi hafi orðið minna en spáð hafi verið og að það færi minnkandi. Þá sagði hann að samdráttur væri minni en spáð hafi verið auk þess sem afkoma ríkissjóðs væri betri en á horfði.

Steingrímur gerði hrunið að umtalsefni. Hann sagði verk að vinna við að endurvinna traust og endurreisa efnahaginn sem og græða sár vonsvikinnar þjóðar. Hann sagði störf sérstaks saksóknara, störf dómstóla og skattayfirvalda auk fleiri eftirlitsstofnanna mikilvægir hlekkir í uppgjörinu. Hann áréttaði þó að það starf myndi taka tíma og kosta mikla fjármuni.

Steingrímur sagði Íslendinga fyrsta vestræna ríkið sem hafi orðið heimskeppunni að falli. Hann sagði Ísland einnig einu til einu og hálfu ári á undan öðrum þjóðum í endurreisn.

Steingrímur sagði síðan að traust Alþingi yrði endurvakið eingöngu með góðum vinnubrögðum og skilvísi. Hann sagði það ekki koma til greina að fara í sumarfrí fyrr en úrræði vegna skuldavanda heimilanna væru komin í skjól. Hann sagði að það væri ekki farið í frí á meðan einkavæðing vatnsins stæði fyrir dyrum.

Þá sagði Steingrímur að Ísland væri að öðlast traust alþjóðasamfélagsins á ný.

Ef allrar sanngirni væri gætt þá áttu fjármagnseigendur að blæða fyrir gjaldþrot bankanna sem þeir lánuðu peninga í því formi að kaupa af þeim skuldabréf. Nei, heimilin eiga að blæða en fjármagnseigendur að fá sitt.

Ég veit að ég er við það að gefast upp. Hef hvorki áhuga á að borga lánin mín né rétta við þjóðarskútuna því ég veit að ég fæ ekkert að launum fyrir hjálpina.

Popularity: 12% [?]

Comments are closed.