Fjölskylduhelgi
Sumar helgar er ekkert planað og þá er um að gera að slappa bara af og njóta þess að vera með fjölskyldunni.
Helgin núna var þannig. Ekkert planað, bara að gera það sem okkur langaði til, þegar okkur langði.
————————————————–
Fórum í 11 ára afmæli á föstudaginn til Odds Bjarka eftir leikskóla hjá strákunum og léku þeir sér þar úti í garði í góða veðrinu. Það sátu allir úti og nutu góðra veitinga, sem voru léttkryddaðar með svifryki og ösku frá Eyjafjallajökli.
————————————————–
Við Frank Gabríel fórum í bæinn í gær saman að skoða ham af úlf sem er til sölu í búð við hliðina á búðinni hjá pabba á Laugaveginum. Frank Gabríel er mjög áhugasamur um úlfa, er sjúklega hræddur við þá eftir að hafa heyrt sögurnar af Rauðhettu og úlfinum, Kiðlingunum sjö, Pétri og úlfinum og fleiri sögur þar sem úlfurinn er vondi karlinn. Hann segist samt vera með stórt hjarta og að hann geti alveg ráðið við einn úlf, en við eigum samt að loka og læsa öllum hurðum á kvöldin þannig að úlfurinn komist ekki inn.
Ætluðum að kíkja á Hátíð hafsins en fundum ekkert á hafnarbakkanum hjá Kolaportinu (komst að því seinna að hátíðin var úti á Granda) og enduðum því í Kolaportinu. Frank Gabríel var frekar fúll við mig að vilja ekki kaupa notaðan Súperman búning sem hann sá þar, en mér fannst heldur mikið að borga 3.000 fyrir búning án skikkju þegar nýir búningar í Toys’R'Us kosta 4þ. Frank gerði mér bilt við þegar hann fór í fýluna og lét sig hverfa í Kolaportinu. Það var mjög óþægileg, svo vægt sé til orða tekið, að hafa ekki hugmynd hvar barnið manns er, en hann hljóp fyrir horn og faldi sig.
Þegar við komum heim úr bænum var Almar Freyr búinn að taka hádegislúrinn og fór öll fjölskyldan í göngutúr niður að Elliðavatni. Frank og Almar fengu að vaða og endaði það auðvitað með því að Frank Gabríel datt í vatnið og renn-bleytti sig. Kom ekki að sök því veðrið var milt og gott.
————————————————–
Við drifum okkur í Fjölskyldu- og húsdýragarðinn snemma í morgun, til að ná tíma þar áður en Almar þyrfti að fara heim að sofa, en einnig til að forðast raðirnar og margmennið sem er þar alltaf eftir hádegi. F&H er alltaf jafn vinsæll hjá þeim báðum; Almar hefur mest gaman af dýrum og hringekju, en Frank elskar fallturninn og bátana.
Hlynur og Kolgrímur hittu okkur í F&H í hádeginu og voru grillaðar pylsur ofan í allt liðið.
Þegar Ösp fór heim með Almar í hádegislúrinn fóru Frank og Kolgrímur í fallturninn og fleiri tæki. Þeir stóðu sig eins og hetjur í bátunum og skiluðu sér sjálfir í land þegar tíminn var að renna út.
Eftir F&H var farið í Sundahöfn að skoða franska Freigátur sem var þar til sýnis. Frakkarnir vildu ekki sýna neitt of mikið og mátt aðeins taka stuttan hring um dekkið á skipinu. Frank Gabríel fannst þetta ekkert merkilegt, hann vildi fara inn að skoða eins og hann mátti gera í þýsku herskipi sem kom til landsins í febrúar.
————————————————–
Næstu helgar verða væntanlega ekki alveg jafn afslappaðar og þessi var. Útskriftin úr HA er næstu helgi og er ég ennþá að reyna að ákveða hvort ég eigi að fara norður og vera við útskriftina eða ekki og hvort ég eigi að halda einhverja veislu eða ekki. Þarf að taka ákvörðun mjög fljótlega. Ása er að koma suður með Unu og Frosta í vikunni og kemur með tjaldvagninn sem við keyptum af henni í eftirdragi. Það er því stefnt á útilegu næstu helgar þar á eftir, og a.m.k. 3 helgar í júlí eru bókaðar í ættarmót eða annarskonar viðburði og svo bætum við eflaust einhverjum útilegum við sjálf. Það verður því mikið um að vera næstu helgar.
Popularity: 57% [?]
