F24 – Freyjubrunnur 24
2.3.2012 – 16:30 | Comments Off

Þá sér fyrir endann á byggingarferlinu á Freyjubrunni 24 í Úlfarárdal, eða Úlfarsfelli eða hverfinu við hliðina á Grafarholti eins og við Ösp erum farin að kalla hverfið. Við áttum að fá afhent skv. kauptilboði …


Read the full story »
Óflokkað

Frank Gabríel

Daglega lífið

Vert að skoða

Almar Freyr

Home » Pæling

Þakklæti, þakklæti og þakklæti

Submitted by on 13.6.2010 – 01:264 Comments

Á svona stundum er maður deigur eins og smjör (kannski af því að maður hefur fengið sér tvo bjóra og rauðvín með matnum).

Útskrift í dag úr Háskólanum á Akureyri og langþráð markmið orðið að veruleika. Markmið sem er búið að kosta mikið gagnvart Ösp, Frank og Almari í fjarveru og huga. Þrjú (mis) strembin ár liðin með ýmsum hindrunum og ófærum á leiðinni að takmarkinu sem náðist í dag.

Er ekki kominn með einkunnaspjaldið í hendur en er með staðfestingu á námsárangri sem sýnir það sama. Sat í kvöld og horfði á það. Lokaeinkunnin neðst ásamt nöfnum og númerum allra áfanganna og einkunnum fyrir þá. Renndi yfir áfanga einn af öðrum og gat kallað fram minningar um tímann sem fór í þá, fólkið sem ég lærði með, námsefnið sem ég lærði, undirbúninginn fyrir prófin. Þetta kallaði fram hjá mér vissan söknuð en um leið góðar minningar.
Ferðirnar norður á fjarnemadaga.
Undirbúninginn fyrir prófin.
Ritgerðirnar sem voru skrifaðar á einni helgi.
Heimadæmin sem voru reiknuð um miðjar nætur.
Samnemendur sem liðu sömu þjáningar.

Kiddi, Ingólfur, Ingi Hafliði, Hanna Björg, Ásta, Kristín, Heiðar, Íris, Erla, Sölvi, Árni,  Guðrún, Freyja, Edda, Jóhanna, Smári, Reynir, Guðbjörg, Gunna Stína, Ásdís og allt hitt fólkið sem ég kynntist eða vann með í náminu. Takk.


Popularity: 17% [?]

4 Comments »

  • Hanna Björg says:

    Takk sömuleiðis elsku Frank okkar.
    Þú ert yndi.

    Kv. Hanna Björg

  • Gunna Stína says:

    Takk kærlega sömuleiðis, gaman að kynnast þér og fjölskyldu þinni :) Skemmtu þér vel í sumar og gangi þér vel í nýju námi.

  • Til lukku með þetta, kæri vinur. Gangi þér allt í haginn, sjáumst vonandi fljótlega. Er fluttur í næsta nágrenni við þig.

  • Ingi Hafliði says:

    Takk sömuleiðis fyrir gott samstarf. Gangi þér allt í haginn.