Sumarfrí með Almari Frey
22.7.2010 – 23:43 | Comments Off

Leikskólinn fór í sumarfrí hjá Almari um síðustu helgi, Ösp er ennþá að vinna, fer ekki í frí fyrr en eftir Verslunarmannahelgi og Frank Gabríel er fyrir Vestan hjá tengdó (eins og lesa má um …

Read the full story »
Óflokkað

Frank Gabríel

Daglega lífið

Vert að skoða

Almar Freyr

Home » Daglega lífið

Út að hjóla

Submitted by Frank on 26.6.2010 – 00:39No Comment

Frank Gabríel í skíðabrekkunni í Seljahverfi að hvíla lúin bein í hjólatúr.

Er búinn að enduruppgötva hve gaman er að fara út að hjóla.

Fór með Frank Gabríel út að hjóla síðasta sunnudagskvöld og hann stóð sig eins og hetja í ansi löngum hjólatúr. Ætluðum upphaflega aðeins að hjóla hérna í næsta nágrenni en áður en við vissum af vorum við komnir langleiðina yfir í Seljahverfið og fórum því til ömmu og afa í Raufarseli og fengum okkur að drekka. Frank Gabríel sagðist þá vera þreyttur og var alveg til í að fá far heim, en ákvað að lokum að hjóla heim fyrst hann hafði hjólað þetta langt að heiman.
Fórum aðra leið heim en yfir í Seljahverfið, og það var svolítið erfitt fyrir Frank Gabríel því það voru endalausar brekkur að fara upp á leiðinni heim.

Ég fór svo einn út að hjóla eitt kvöldið núna í vikunni, fór niður með Elliðaánum niður í Elliðaárdal og hjólaði sem leið lá að Sprengisandi við Reykjanesbraut. Þar tók hjólaskrattinn uppá því að bila. Legurnar í afturdekkinu voru orðnar slappar eftir álagið sem barnastóll og þyngin mín lagði á þær, og þar sem ég var kominn eins lagt að heiman og ég ætlaði þá bilaði hjólið auðvitað þar. Ég gat komið í Raufarsel með herkjum og gerði tilraun til að laga hjólið þar. Eyddi góðum klukkutíma í að skrúfa í sundur allt sem tengist öxlinum á afturdekkinu og laga legurnar, aðeins til þess að geta hjólað á hjólinu 400 metra áður en það bilaði aftur, og nú verr en áður. Ég neyddist því til að labba með hjólið heim frá mömmu og pabba yfir Vatnsendann.

Dekkið fór í viðgerð í gær og fæ ég það (vonandi) aftur á þriðjudag. Ég ætla þá aftur út að hjóla og krosslegg fingur um að hjólið klikki ekki í það skiptið.

Popularity: 29% [?]

Comments are closed.