Eru stjórnvöld að reyna að hafa áhrif á hlutlausa dómstóla??
Fitch matsfyrirtækið gaf út óvissu-”ummæli” í gær um fjármálakerfið á Íslandi; sagði dóm Hæstaréttar um ólögmæti gengistryggðu lánana geta dregið úr stöðugleika fjármálakerfising og seinka efnahagsbata á Íslandi.
Gylfi Magnússon viðskiptaráðherra sagði í fréttum RÚV í gær að
“ef íslenska dómskerfið leysir þetta viðfangsefni á sómasamlegan hátt”
verði niðurstaðan ekki í líkingu við þá sem Fitch mat stöðuna.
Hvað er “sómasamlegur háttur”?? Er það að dæma lánin lögleg gegn fyrrum dómi Hæstaréttar?? Eða er það að setja á lánin háa vexti og verðtryggingu til að hægt sé að bjarga fjármálakerfinu?
Er ekki “sómasamlegur háttur” að dæma eftir lögum, en draga ekki taum annars aðilans að kröfu stjórnvalda? Svona ummæli, þar sem algjört virðingaleysi er borið fyrir landsmönnum sem berjast við að greiða af sínum skuldbindingum, algjört virðingarleysi er borið gagnvart lögum landsins og algjör undirlægja gagnvart fjármálastofnunum gera mig alveg óstjórnlega reiðan.
Audio clip: Adobe Flash Player (version 9 or above) is required to play this audio clip. Download the latest version here. You also need to have JavaScript enabled in your browser.
Popularity: 8% [?]


Maður fær það á tilfinninguna að þetta sé raunin því miður. Hélt alltaf að Gylfi væri maður fólksins en það er ekki svo. Á meðan hann snýr alltaf ummælum sínum að dómskerfinu á þennan hátt sér maður hvaða mann hann hefur að geyma. Vinnur fyrir fjármagnið, eins og allir sem stjórna eða hafa stjórnað hér. Frank Magnús, farðu í framboð. (ég myndi kjósa þig jafnvel þó þú farir fram fyrir sjallana, það er loforð! )