Sumarfrí með Almari Frey
22.7.2010 – 23:43 | Comments Off

Leikskólinn fór í sumarfrí hjá Almari um síðustu helgi, Ösp er ennþá að vinna, fer ekki í frí fyrr en eftir Verslunarmannahelgi og Frank Gabríel er fyrir Vestan hjá tengdó (eins og lesa má um …

Read the full story »
Óflokkað

Frank Gabríel

Daglega lífið

Vert að skoða

Almar Freyr

Home » Vert að skoða

Fjármögnunarfyrirtækin verða öll gjaldþrota

Submitted by Frank on 14.7.2010 – 12:27No Comment

Ég sagði við marga í framhaldi af því að dómur Hæstaréttar um lögmæti gengistryggingar og byrjað var að rífast um vextina sem notast ætti við af þessum lánum, að þau yrðu hvort eð er öll gjaldþrota. Það er nú að koma í ljós og fyrsta fyrirtækið er að falla.

Þegar Seðlabanki og Fjármálaeftirlitið komu fram með tilmæli um að notast ætti við óverðtryggða vexti Seðlabankans, til að koma í veg fyrir gjaldþrot fjármögnunarfyrirtækjanna, voru rökin þau að þessir vextir, eða verðtrygging + vextir, myndi koma í veg fyrir óvissu og gjaldþrot fyrirtækjanna. Koma átti í veg fyrir gjaldþrotin til að ríkissjóður myndi ekki þurfa að leggja fram pening, eða tapa pening á gjaldþrotunum. Ofgreiðslur lánþegar skiptu í þessu samhengi stjórnvöld engu máli.

Verðbætur og vextir eru stighækkandi eftir því sem líður á lánið. Það að setja verðtryggingu á lánsupphæð sem er “upprunaleg”, ekki “gengistryggð”, gagnast því ekki fjármögnunarfyrirtækjunun sem þurfa að standa “núna” skil á upphæð sem er tvöföld sú upphæð sem þau fá frá lántakandanum (að því gefnu að þau hafi í raun sjálf fjármagnað sig með lánum í erlendum gjaldmiðli, en ekki bara tekið lán hjá innlendum banka). Það að eftir einhver par ár sé verðtrygging búin að ná í skottið á gengistryggingunni og skilar þá fjármögnunarfyrirtækinu hærri greiðslum en gengistrygging væri að gera á þeim tíma, bjargar ekki fjármögnunarfyrirtæki úr þeirri snöru sem það er nú komið í, í stað lántakandans sem áður var í sambærilegri snöru fjármögunarfyrirtækisins.

Það er alveg sama hvernig þessum málum verður snúið, hvort sem að samningsvextir, verðtrygging eða óverðtryggðir vextir verði settir á, fjármögnunarfyrirtækin eru sokkin.

Mér er sama þó þessi fyrirtæki fari á hausinn, í þeirri merkingu að þau hafa gengið hart fram í að innheimta skuldir sem ekki var stofnað til nema að hluta og þegar vörslusviptir hlutir voru seldir var það með svo miklum afföllum að lántakendur fengu lítið uppí skuldina. Þess vegna er mér sama þó þessi fyrirtæki fari á hausinn. Mér er einnig sama um eigendur fyrirtækjanna sem hafa með eignarhaldi og þögn samþykkt þessa harkalegu framgöngu fyrirtækjanna.

Ég er aftur á móti ósáttur við að fyrirtæki sem hefur ofrukkað lántakendur um greiðslur af lánum skuli ekki þurfa að greiða til baka. Þessir ofgreiddu peningar eiga að vera forgangskröfur að mínu áliti og endurgreiðast að fullu. En hér eru stjórnvöld við völd sem ekki hafa kjark til að taka sér stöðu með heimilum og skuldurum. Því miður.

Popularity: 37% [?]

Comments are closed.