Sumarfrí með Almari Frey
22.7.2010 – 23:43 | Comments Off

Leikskólinn fór í sumarfrí hjá Almari um síðustu helgi, Ösp er ennþá að vinna, fer ekki í frí fyrr en eftir Verslunarmannahelgi og Frank Gabríel er fyrir Vestan hjá tengdó (eins og lesa má um …

Read the full story »
Óflokkað

Frank Gabríel

Daglega lífið

Vert að skoða

Almar Freyr

Home » Frank Gabríel

Frank Gabríel ekkert á heimleið

Submitted by Frank on 22.7.2010 – 00:00No Comment

Við fórum Vestur á firði í síðustu viku,  stoppuðum í Bolungarvík hjá tengdó í 2 daga og fórum svo á ættarmót á Núpi í Dýrafirði.

Áður en við fórum Vestur vorum við búin að biðja tengdó um að vera með Frank Gabríel hjá sér þessa vikuna, leyfa honum að eiga gæðatíma með ömmu og afa fyrir Vestan og auðvitað öllu frændfólkinu þar. Tókum hjólið með fyrir hann til að hann gæti hjólað og leikið í Víkinni.

Hann er búinn að vera í endalausum ævintýrum með afa og ömmu, fór á sjóinn með afa að veiða í soðið, fór á hestbak með Valda afa-bróður, fékk að taka á móti nýja hundinum hjá Gunna og krökkunum, búinn að læra að klifra upp á leikskólann og fleira.

Tengdó ætluðu að koma suður á föstudag, leggja af stað annað kvöld og koma í bæinn snemma á föstudag. Í kvöld hringdu þau svo og spurðu hvort Frank mætti vera lengur fyrir Vestan. Þau breyttu sínum ferðaplönum og ætla ekki að koma fyrr en á sunnudag. Við Ösp sitjum hérna voða sorrí yfir því að fá ekki púkann okkar heim fyrr en á sunnudag, en huggum okkur við að hann skemmtir sér vel með ömmu og afa.



Popularity: 37% [?]

Comments are closed.