Og hvað mega útlendingar þá kaupa á Íslandi?
Í tilefni þessarar umræðu um Magma Energy og skúffuna í Svíþjóð, fór ég að spá hvað það er sem útlendingar mega og mega ekki gera á Íslandi. Útlendingar mega ekki eiga náttúruauðlindir og ekki í fisk-iðnaðinum.
Það sem á að bjarga Íslandi úr kreppunni eru m.a. fjárfestingar útlendinga á Íslandi. En hverju eiga þeir að fjárfesta í? Hvað er þess virði að það sé leggjandi fjármagn í fjárfestingu hér?
Ísland hefur þrennt að bjóða: náttúruauðlindir í orku, fisk-iðnað og ódýrt rafmagn. Tvennt mega útlendingar semsagt ekki versla, og það þriðja slást Íslendingar sjálfir um að falbjóða á svo lágum verðum að hingað vilja útlendingar koma með þung-iðnað í einhverju mæli. Áhættan við að koma með þung-iðnað til Íslands er að stjórnarfarið hér er svo óstöðugt að skattar og gjöld geta rokkað mikið á þeim líftíma sem áætlaður er á fjárfestingunni.
Ég held að útlendingar hafi áhuga á orkunni og fisknum, takmarkað áhuga á að byggja stórar verksmiðjur og engan áhuga á öðru. En það skiljum við ekki. Við höldum að útlendingar komi hingað með fullar ferðatöskur af seðlum leitandi að fallegum hótelum eða pylsuvögnum til að kaupa fyrir milljarða (sem eiga auðvitað að skila sér allir til ríkissjóðs).
Ég sé ekki fyrir mér að mikil fjárfesting af hendi útlendinga sé að fara að eiga sér stað hér næstu ár, því það sem við höfum að bjóða er bannað að selja.
Popularity: 8% [?]

