Sumarfrí með Almari Frey
Leikskólinn fór í sumarfrí hjá Almari um síðustu helgi, Ösp er ennþá að vinna, fer ekki í frí fyrr en eftir Verslunarmannahelgi og Frank Gabríel er fyrir Vestan hjá tengdó (eins og lesa má um hér). Fyrir vikið erum við feðgarnir búnir að eiga æðislega viku saman í rólegheitum.
Veðrið hefur verið þannig að sundferðir hafa verið ofarlega á stefnuskránni og höfum við farið í sund á hverjum degi, en aldrei sömu laugina!
Við erum búnir að kíkja í Grasagarðinn í Laugardal með ömmu Ingu, búnir að spóka okkur í bænum, búnir að kíkja á róló og leggja okkur um hádegisbil (Almar inni í rúmi, ég í sólinni á svölunum).
Það er munur að vera með Almar Frey núna m.v. í september í fyrra þegar ég var í fæðingarorlofi með hann. Þá var hann svo lítill að fátt var hægt að gera með honum og hann varð að vera kominn í rúmið kl 12 á hádegi. Núna er hægt að dunda með honum endalaust, syngja, fara í göngutúra og fleira skemmtilegt.
Í næstu viku verður Frank Gabríel svo með okkur og þá er stefnan auðvitað sett á sund á hverjum degi, og ætla ég í Vatnaveröldina í Reykjanesbæ með þá ásamt innileikgarðinn á Ásbrú. Þarf samt að finna út hvernig best er að púsla því saman með svefninn hjá Almari sem slítur dagana svolítið í sundur. Fjölskyldu- og húsdýragarðurinn er auðvitað líka á dagskránni, en þar spilar veðrið meira inní en í sundinu.
Popularity: 57% [?]

