Þjóðhátíð – 18.000 gestir?
Ég hef farið nokkrum sinnum á Þjóðhátíð í Vestmannaeyjum. Í ein fjögur skipti ef minnið er ekki að bregðast mér. Gestafjöldinn í þau skipti sem ég hef farið hefur verið í kringum 9.000 manns. Öll skiptin fór ég áður en sviðinu var snúið og “Brekkunni” breytt.
Í öllu falli þá er það mitt mat, að Vestmannaeyjar bera ekki mikið fleiri gesti en 9-10 þúsund. Bærinn er fullur af fólki, veitingastaðir eru fullir af fólki, bekkjarbílar eru fullir af fólki, Dalurinn er fullur af fólki og allt sem fæst keypt á annað borð -matur, veitingar, þjónusta- er á tvöföldu verði.
Sé þessi gestafjöldi næstum tvöfaldaður -í 18.000 gesti- er hætt við að þessi sjarmi sem er á Þjóðhátíð í Vestmannaeyjum hverfi. Þetta verði bara kraðak af fólki að troðast fram og aftur um svæðið leitandi að lausu klósetti.
Ég er heldur ekki viss um að tíðar ferðir Herjólfs milli Eyja og Landeyja séu af hinu góða varðandi Þjóðhátíð. Í fyrsta skiptið sem ég fór á Þjóðhátíð ’96 tókst mér að týna peningunum mínum á laugardeginum, bjórinn var volgur, hamborgararnir súrnuðu í töskunni og það rigndi eldi og brennistein. Ég gerði því tilraun til að fara heim á sunnudagsmorgninum þegar ég vaknaði, en Herjólfur var þá farinn (einu) ferðina til Þorlákshafnar þann daginn. Ég gerði því gott úr hlutunum og djammaði af mér rassinn um kvöldið og skemmti mér konunglega með Ragga vin. Eftirá, hefði ég ekki viljað fara heim á sunnudeginum. Ef Herjólfur aftur á móti hefði farið 5 ferðir þann dag eins og hann mun sennilega gera næsta sunnudag, hefði ég farið heim áður en Þjóðhátíð var búin.
———————————–
Ég tel að ÍBV ætti að reyna að takmarka fjöldann á Þjóðhátíð með einhverjum hætti. Einhver háttur er auðvitað að selja FÆRRI miða í Dalinn. Fleiri miðar þýða auðvitað meiri tekjur, og Þjóðhátíð er vissulega tekjupóstur fyrir ÍBV. Ef ætlunin er að græða sem mest er skiljanlegt að sem flestir miðar eru seldir. En eins og ég nefndi hér að ofan fer sjarminn af Þjóðhátíð með 18.000 gestum. ÍBV getur þá farið þá leið fækka miðum og hækka miðaverð til að fá samsvarandi tekjur af 12.000 miðum og 18.000 miðar gefa í dag. Til að koma í veg fyrir brask með miða þyrfti þá að gefa þá út á nafn (t.d. í gegnum Miða.is). ÍBV gæti líka sýnt alvöru virðingu gagnvart Þjóðhátíð og gefið út 12.000 miða, hætt að horfa á gróða út í eitt og haldið miðaverði eins.
Popularity: 12% [?]


sammála.
Týndirðu peningunum? TÝNDIRÐU PENINGUNUM? Sagði mamma þín þér ekki áður en þú fórst að passa að týna ekki peningunum?? Og Herjólfur fór alltaf 13 á sunnudögum á þjóðhátíð, kallinn hefur sofið vel frameftir
Annars er ég sammála með fjöldann. Verður spennandi að sjá hvernig þetta kemur út hjá þeim.