Tjaldvagn og útilegur
Þá eru tvær útilegur á tjaldvagninum að baki og fleiri framundan. Tjaldvagninn var sannarlega góð kaup og hafa kveikt í okkur Ösp mikla ferðalöngun um landið. Þurfum að hafa vit fyrir hvort öðru til að koma í veg fyrir kaup á rafmagns-kæliboxi, hitablásara, tugum metra af rakavarðri rafmagnssnúru, útilegustólum og öðrum óþarfa, sem þó er alveg bráðnauðsynlegur!! Ætlum að láta fyrst um sinn duga að kaupa plastdiska, -glös og hnífapör þannig að ekki þurfi að tæma eldhúsið heima fyrir hverja útilegu.
Tjaldvagninn er ótrúlega vel með farinn, og þá ekki endilega miðað við að hann er 1980 árgerð, en okkur grunar að það hafi verið saumað á hann nýtt tjald og fortjald þegar vagninn var fluttur til landsins fyrir 15 árum. Með í kaupunum fylgdi laust “eldhús”, gaseldavél, heimasaumaðar gardínur, dúkur í fortjaldið og fleira smádót.
Subaru-inn ræður vel við tjaldvagninn enda ekki mikil þyng í honum, innan við 400kg. Það munar þó miklu fyrir okkur að losna við að hafa tjald í skottinu, ásamt því að hægt er að hafa nokkuð af dóti bæði inni í vagninum þegar hann er lagður saman og einnig er farangursgrind ofan á honum sem segl-dúkurinn fer yfir. Skottið, sem yfirleitt var smekkfullt (eins og sjá má hér í ferðalagi sumarið 2009) er núna aðeins hálft og ekkert dót til fóta hjá strákunum.
Tvær útilegur að baki eins og áður sagði, ein í Miðskógi hjá Laugarvatni fyrir viku síðan og svo útilega með starfsmannafélaginu hjá Samskip í Hraunborgum í Grímsnesi síðustu helgi. Báðar útilegurnar voru alveg frábærar, strákarnir skemmtu sér mjög vel og fengu að “leika lausum hala” eða þannig, fengu semsagt að vera úti að leika (Frank á róló, Almar við tjaldið) án þess að við Ösp værum yfir þeim 24/7.
Næstu helgi eru tvö ættarmót, annað er fyrir utan Grindavík en hitt er haldið á Þingvöllum. Við ætlum að reyna að mæta á bæði fyrst að ekki er lengra á milli þeirra og njóta þess besta frá báðum mótunum.
Helgina þar á eftir verður lengra að fara, en þá er ættarmót á Núpi við Dýrafjörð. Það er alltaf skemmtilegt að fara vestur, vonandi náum við að teygja ferðina í annan hvorn endan þannig að þetta verði ekki bara akstur á ættarmót, ættarmót og akstur til baka. Það væri skemmtilegt að hafa tíma til að stoppa í Bolungarvík hjá tengdó eða hjá Ásu á Ísafirði í 1-2 nætur öðru hvoru megin við ættarmótið.
Þar sem við Ösp erum alveg snarvitlaus í útilegur þessa dagana og höfum alveg ótrúlega gaman af því að keyra (eða þannig) með strákana pirraða í aftursætinu þá ætlum við þar á eftir að skella okkur í útilegu með saumaklúbbnum. Stutt frá Reykjavík var “leitarskilyrðið” og verður því farið í Fossatún í Borgarfirði, á Flúðir eða álíka þá helgi.
Popularity: 97% [?]


Hæ Frank
það er gott að vera bitinn af útilegu bakteríunni.
Ég mæli með því að þú kaupir (eða allavega skoðir) Útilegukortið. Flest stéttarfélögin niðurgreiða það. Þið verðið örugglega ekki ánægð á tjaldsvæðunum á Fossatúni og enn síður í sardínudósinni á Flúðum. Ég myndi miklu frekar skoða t.d. tjaldsvæðin við Faxa (Vatnsleysufoss) eða Álfaskeið. Bæði eru í Tungunum og í Útilegukortinu. Svo mæli ég með því að þú fjárfestir í ódýrum hitablásara, sem kostar um 3.000.- kr. í mörgum verslunum, t.d. byggingavöruverslunum. Þeir eru 1.800 -2.000w. Hafðu svo með þér eins langa rafmagnssnúru og þú finnur (eða átt til). Það gerir ferðalagið miklu þægilegra að geta hitað vel, sérstaklega ef það er einhver úrkoma. Það er líka mun ódýrara að hita með rafmagninu á tjaldsvæðunum en með gasi. Allavega ef þú villt hita alla nóttina. það gerði ég í mínum tjaldvagni og svaf undir sæng. Svo sá ég fínustu plastdiska í Hagkaup í gær. Veit ekki um verði, en við eru með þannig diska og líkar vel.
Kv.
Emil