33,3% verðhækkun á sundkortum hjá Kópavogsbæ
Sundlaugarnar hafa verið stundaðar grimmt undanfarnar vikur á meðan strákarnir hafa verið í fríi.
Við áttum 30 miða kort í Kópavogslaugarnar sem keypt var í febrúar 2009 og kláraðist það í vikunni. Í febrúar 2009 kostaði 30 miða kort 5.250 kr. Núna greiddi ég 7.000 kr fyrir samsvarandi kort. Það er 33,3% hækkun. Ég nefndi við afgreiðslustúlkuna hvað þetta væri orðið dýrt, og hún réttlætti þessa verðhækkun með að verð á stökum ferðum hefur hækkað úr 280 kr í 350 kr, sem er 25% hækkun.
Mér finnst 25% hækkun á sundferð mikil hækkun, og hvað þá 33,3% hækkun!!
Popularity: 53% [?]


yess ….
Já það er gott að búa í Kópavogi sagði maðurinn !!!!
Ég hef ekki borgað í sund í mörg ár. Íslandssaga og Klofningur borga í sund og ræktina fyrir starfsfólk sitt. Öll börn yngri en 16 ára fá svo frítt í sund í Ísafjarðarbæ.
Sund. Skil ekki þessa ánægju. 3 síðustu ár hef ég farið oftar í sund en 30 ár þar áður eða alls 6 sinnum. Sund er stórlega ofmetin skemmtun. Ég tek út fyrir að fara í sund. Og svo kostar það heldur ekki neitt að sleppa því.
Ég hefði nú getað sett þetta sjálfur hér…
Þetta gerist sjálfkrafa.
Forritið sem póstar færslunni upphaflega hingað sækir og sendir comment í báðar áttir.
svo má sleppa að fara í sturtu líka…. LOL