Námskynning í Vatnsendaskóla í morgun
Fórum öll fjölskyldan í Vatnsendaskóla í morgun á námskynningu milli 8.10 og 9.10.
Þegar við mættum í skólann tók kennarinn hans Franks á móti bekknum og útlistaði hvernig námskynningin ætti að vera. Hún fólst í að börnin áttu að sína foreldrum sínum hvað þau eru búin að læra hingað til og hvað þau munu læra í vetur.
Það var gaman að sjá skólann fullan af lífi því þegar við Ösp höfum farið í skólann þá er það annaðhvort áður en skólastarfið hefst á daginn eða eftir að því líkur.
Frank Gabríel er orðinn góður í að gera bók- og tölustafi, hann er búinn að vera í handmennt (textílmennt kallast það víst í Vatnsendaskóla) og gerði þar rosalega flott útsaumað stykki. Við fórum á bókasafnið og röðuðum upp taflmönnum, skoðuðum myndir á göngunum og margt fleira.
Almar fór með skólatösku á bakinu því hann var að fara í skólann með Frank Gabríel. Í töskunni voru, áður en Ösp sagði honum að hann ætti að fara með bækur, Bangsímon og fleira dót. Hann tók það út og setti eina STÓRA bók í staðinn.
Popularity: 18% [?]

