Frank Gabríel keppti með HK í morgun gegn KR
Það var aldeilis spenntur 6 ára strákur sem vaknaði í morgun á þessu heimili. Klukkan 5:30 nákvæmlega, svo spenntur var hann. Ástæðan fyrir spenningnum var sú að flokkurinn hans í HK átti að keppa í fótbolta við jafnaldra úr KR í Kórnum.
Við fórum öll af stað um klukkan 8.30 til að ná örugglega í Kórinn á réttum tíma. Þegar við komum í Kórinn var hópnum skipt á þrjá velli, og fóru 3 leikir samtímis fram.
Það er skemmst frá því að segja að Frank Gabríel og liðið hans vann fyrsta leikinn 2 – 1, og var það glæsilegur árangur miðað við ringulreiðina sem ríkti inni á vellinum.
Öðrum leiknum tapaði liðið hans Franks svo 1-0, og var hann ekki alveg jafn sáttur við þau úrslit.
Meðfylgjandi eru nokkrar myndir frá leikjunum.
Popularity: 5% [?]





