Jólafrí, vetrarfrí, páskafrí, sumarfrí, foreldrafundir og starfsdagar.
Það er merkilegt að eiga barn á fyrsta ári í grunnskóla. Það er eins og skólastjórnendur haldi að foreldrar barna eigi ótakmarkaða frídaga. Og þá á öðrum tíma en yfir sumarið.
Fyrst ber að nefna 2,5 mánaða sumarfrí. Það er frá ca 6. júní til 22. ágúst. Samtals ca 50 dagar.
Næst ber að nefna vetrarfrí. Bæði fyrir og eftir áramót eru þrír dagar, samtals sex.
Þá er komið að jólafríinu. Skólinn hjá Frank fer í frí eftir þriðjudag, en þá eru litlu jólin. Jólafríið er þá 9 virkir dagar.
Páskafrí er 3 virkir dagar.
Starfsdagarnir og foreldrafundir eru minna mál því þá er dægradvölin (pössun í skólanum) opin frá 8.10 til 17.00.
Ofantalið, að undanskildu sumarfríinu, starfsdögum og foreldrafundum, eru 18 virkir dagar sem foreldrar þurfa að taka sér frí eða redda pössun eftir öðrum leiðum. Samtals gera þetta ca 68 daga, með sumarfríi, en flest fólk sem er að vinna er með 24 til 30 daga í sumarfrí. Þá vantar 8 daga samt uppá, og þá er ekki gert ráð fyrir að hjón taki neina frídaga saman.
Í leikskólanum var þetta auðveldara. Eða þannig. Þar fer leikskólinn bara í 4 vikna sumarfrí og lokar yfir hásumarið, og er með svo ca 8-10 starfsdaga yfir veturinn.
Popularity: 7% [?]


já velkominn í hópinn ….
svo ekki sé minnst á alla dagana þar sem foreldrar eiga að koma i heimsókn í skólann, þeir eru ekki svo fáir …….. Það er stundum gott að hafa sveigjanlegan vinnuveitanda …..
kv. Hanna