020202 – 020212 – 10 ára brúðkaupsafmæli
2.2.2012 – 10:16 | Comments Off

Þegar ég stóð í Seljakirkju og beið eftir að Ösp kæmi með Leifa föður sínum, og þá tilvonandi tengdaföður mínum, fyrir 10 árum vissi ég ekki hvað framtíðin bæri í skauti sér. Framtíðin var óskrifað …

Read the full story »
Óflokkað

Frank Gabríel

Daglega lífið

Vert að skoða

Almar Freyr

Home » Daglega lífið, Strákarnir

Mikil spenna hjá strákunum fyrir jólunum

Submitted by on 20.12.2011 – 22:42No Comment

Núna þegar aðeins 4 dagar eru til jóla eru strákarnir á yfirsnúning af spenning fyrir jólunum.

Þeir eru búnir að telja niður dagana frá því í byrjun nóvember, Frank Gabríel með heimagerðu dagatali sem var með 15 reitum til að stimpla í. Sem betur fer hætti hann að stimpla eftir aðeins 6 daga þannig að jólin eru ekki alveg komin samkvæmt því dagatali. En hefðu verið komin um miðjan nóvember ef hann hefði stimplað daglega. :-)

Desember er búin að vera annasamur mánuður bæði í Vatnsendaskóla og í Sólhvörfum. Þeir eru búnir að föndra skraut, syngja, leika og gera jólagjafir. Almar er alltaf að leiðrétta bróður sinn sem syngur jólalögin ekki alveg rétt, er búin að læra breyttar og aðeins fullorðinslegri útgáfur af jólalögunum. Sem dæmi þá syngur Frank alltaf “Jólasveinar ganga um gólf með geislasverð í hendi, móðir sópar gólf og flengir þá með sverði, og þá segir Almar “Jank jú ejjjt að ynjga etta vitlaust”.

Jólagjafirnar komu heim í þessari viku, mikill spenningur hjá báðum og annar (Almar) vill opna hana strax, svo spenntur er hann. Þegar við spyrjum hvort að það megi opna gjöfina strax svarar hann að það eigi að gera það á jólunum. Efast um að hann viti hvað það þýðir, en gott að kennararnir í leikskólanum innprentuðu það í börnin.

Þeir fengu báðir tvö dagatöl, eitt súkkulaði dagatal frá ömmu Ingu og afa Frank, og eitt Lego Star Wars (Frank) og Playmo Riddara (Almar). Lego dagatalið kostaði helmingi meira en Playmo dagatalið, en innihaldið í Playmo er tvisvar sinnum veglegra en í Lego dagatalinu. Frank er eiginlega farin að öfunda Almar af öllu Playmo dótinu sem kemur úr hans dagatali.

Jólasveinarnir koma við á hverju kvöldi í gluggunum hjá þeim og gefur í skóinn. Það er mikill spenningur að sjá hvað er í skónum að morgni, svo mikill spenningur að það er vaknað fyrir allar aldir og kíkt í skóinn. Hafa strákarnir vakið hvorn annan við að hlaupa inn í herbergi hjá hinum að athuga hvað er í skónum hjá honum og hvort það sé flottara en það sem viðkomandi fékk. Jólasveinninn sem kemur í þessa glugga gefur yfirleitt það sama í báða skóna til að skapa ekki ósætti milli bræðranna.

Frank fór á litlu jólin í morgun í Vatnsendaskóla. Mikill spenningur fyrir því, en litlu jólin fengu falleinkunn hjá honum því það mætti bara alls engin jólasveinn. Það líkaði mínum manni ekki. Litlu jólin í leikskólanum hjá Almari voru fyrir viku síðan og þar mætti jólasveinn í fullum skrúða, við miklar vinsældir.

Það er semsagt nóg um að vera á þessu heimili fyrir jólin og mikill spenningur.

Popularity: 5% [?]

Comments are closed.