vefblogg.com » Pæling

020202 – 020212 – 10 ára brúðkaupsafmæli
Þegar ég stóð í Seljakirkju og beið eftir að Ösp kæmi með Leifa föður sínum, og þá tilvonandi tengdaföður mínum, fyrir 10 árum vissi ég ekki hvað framtíðin bæri í skauti sér. Framtíðin var óskrifað blað, þó við hefðum vissulega væntingar til hennar.

Framtíð sem nú er liðinn að hluta og sú framtíð hefur gefið okkur báðum mikið. Meðal annars tvo yndislega og ástríka stráka, þá Frank Gabríel og Almar Frey. (Ó)teljandi utanlandsferðir saman, og ennþá fleiri ferðalög innanlands. Eina íbúð sem við erum búin að búa í í 6 ár og eitt raðhús sem við fáum afhent í mars næstkomandi, og áætlum að búa næstu 20 árin.

Það hefur gengið á ýmsu á þessum 10 árum, með hæðum og lægðum. Barnsleysi hrjáði okkur fyrstu árin, en með hjálp lyfja tókst að búa Frank Gabríel til. Almar Freyr var aftur á móti meiri lukka og algjörlega óvænt sending, því við vorum farin að leggja drög að öðru barni þegar hann varð til. Þannig tengjast bæði hæðir og lægðir strákunum.

Við Ösp höfum bæði farið í gegnum háskólanám á þessum 10 árum. Þegar við giftum okkur vorum við aðeins Verslunarskólagengin, en erum núna útskrifaðir viðskiptafræðingar. Meira nám bíður seinni tíma.

Við Ösp lítum björtum augum til framtíðar á þessum tímamótum.

Jólagjöf frá Glock?
Fékk þennan tölvupóst frá Glock byssuframleiðandanum. Upgrade á byssuhaldi í .50 cal. Mögulega sem hugmynd að jólagjöf í USA? Veit ekki hversu góð hugmynd þetta er.

Íslenska krónan gerir útlönd dýr
Er staddur í vinnuferð í Kaupamannahöfn. Ég kom til Kaupmannahafnar síðast í ágúst 2007 og þá var borgin nokkuð dýr. En í dag er hún rosalega dýr -í íslenskum krónum talið. Verðið í dönskum krónum hefur ekki hækkað mikið. En íslenska krónan hefur hrapað langt niður og núna kostar ein dönsk króna um 21,50 íkr, en kostaði 2007 um 11,50 íkr.

Stór bjór kostar frá 40 dkk til 60 dkk á börum (þar sem hann er dýrastur). Þetta gera 860 til 1.290 íkr. Sem er snar geðveikt verð fyrir stóran bjór!

Ef við værum með Evru – jájá komið bara með venjulega rausið um skuldastöðu Evru ríkja og hve veik Evran er – þá hefði kaupmáttur Íslendinga ekki rýrnað um ca 50% frá 2007. Þá væru laun borguð út í evrum, vörur kostuð evrur í búðum, og samanburður milli landa væri auðveldari.

Ég býst við að kaupmáttur í Danmörku hafi haldið sér nokkuð vel frá því fyrir bankahrunið haustið 2008. Og auðvitað eiga íslendingar rétt á að halda kaupmætti sem tekur áratugi að byggja upp.

Meðfylgjandi er mynd sem sýnir íslenskan kaupmátt frá janúar 2006 til júlí 2011 (Smella fyrir stærri mynd). Sannarlega sjokkerandi.

Mynd er fengin frá Datamarket.com

Speki
There are 5 things in life you cannot recover:

A stone…after it’s thrown.

A word…after it is said.

An occasion…after it’s missed.

The time…after it’s gone.

A person…after they die.

Life is short…

Break the rules, forgive quickly, kiss slowly, love truly, laugh uncontrollably and never regret anything that made you smile.

Enjoy Life!!

Það sem ég vildi sagt hafa…
Óöryggi Íslendinga brýst fram í mörgum myndum. Þjóðremba er eitt þeirra.

26.08.2011

Þjóðremba er skálkaskjól

Þjóðremba felst í að telja Íslendinga betri og greindari en aðra. Felst í að telja íslenzka kontórista hæfari en aðra til að semja reglugerðir. Felst í að vilja heldur arðrán innlendra kvótagreifa en fjölþjóðlegar reglur um veiðar. Felst í að telja íslenzka pólitíkusa brúkanlega. Felst í að telja íslenzka búvöru hollari en aðra. Flst í að telja íslenzka braskara snjallari en aðra. Þjóðremba er vinsæl á Íslandi, meirihluti þjóðarinnar þjáist af henni. Tækifærið grípa einkum stjórnmálaflokkar, sem gæta sérhagsmuna gegn almannahagsmunum. Með þjóðrembu að skálkaskjóli leyna þeir tilgangi sínum.

Jónas Kristjánsson, http://www.jonas.is/leidarar/greininp.lasso?id=15768

Sparpera er bara sparpera. Right?
Ég veit að ég er nettur nörd og pæli í hlutum sem engin (eða amk fáir) pælir í. Ég er búinn að vera að pæla í sparperum (Compact fluorescent lamp) undanfarið.

Þetta byrjaði með því að ég keypti IKEA sparperur í IQ ljósið sem við notum sem eldhúsljós heima, því það er svo hrikalega erfitt að skipta um peru í því, því sparperur eiga að vera með 6-15x lengri líftíma. Þar sem IKEA sparperur eru seldar saman í pakka, 2 eða 3 átti ég aukreitis peru. Næst þegar það fór pera í loftljósi á ganginum setti ég því IKEA sparperuna í það (enda líka leiðinlegt að skipta um perur í loftljósum). Það pirraði mig alltaf við IKEA sparperuna í IQ ljósinu að hún var lengi að kveikja á sér; tók smá tíma að kveikja og svo langan tíma að ná fullu birtustigi. Í ljósinu á ganginum var þetta meira áberandi því þar voru tvo ljós tengd á sama rofa og annað með venjulegri peru og hitt með sparperu.

Sparperan dó í IQ ljósinu eftir nokkuð langa notkun (engin nokkur ár, frekar 1,5 til 2 ár) og ég setti aðra týpu af IKEA sparperu í ljósið, því eftir að hafa spurt starfsmann hjá IKEA var mér ráðlagt að taka ekki peru sem væri eins og “pera” í laginu heldur peru sem er eins og samanbrotin flúrpera (æ, þið vitið hvað ég meina). Þær ættu að vera betri og duga lengur.

Svo dó venjulega peran í ljósinu á ganginum (einu sinni sem oftar) og ég átti engar venjulegar perur heima. Ég kippti því með mér Osram sparperu næst þegar ég fór í Bónus. Fannst hún dýr, 598 kr á móti ca. 350 kr hjá IKEA. Ég setti Osram peruna í ljósið og kveikti. Munurinn á þessum tveimur sparperum, Osram og IKEA, er eins og svart og hvítt. Þær eru báðar 11W, en Osram peran er mun bjartari (gæti verið að IKEA peran hafi dofnað, gef henni amk séns að því leiti). Það sem munar þó mestu um er að Osram peran kveikir á sér strax með fullri birtu, meðan IKEA perurnar eru góðar 15 sekúndur að ná fullri birtu og 1-2 sekúndur að kveikja á sér í upphafi.

Þetta dæmi sýnir bara að pera er alls ekki pera, og allra síst þegar um er að ræða sparperu. Ég skrifaði færslu um mun Osram og IKEA perum í september 2008, IKEA vs Osram. Eftir að hafa notað þessar 10 IKEA glóperur þá get ég aðeins sagt, þú færð það sem þú borgar fyrir. IKEA glóperurnar voru drasl.

Öfugsnúnir foreldrar
Merkilegt hvað maður vill “laga” ákveðna hluti í fari barnanna sinna, og þegar barnið er búið að “laga” viðkomandi hlut þá saknar maður hans.

Frank Gabríel kom alltaf upp í rúm til okkar Aspar frá því að hann var 2-3 ára, kom stundum snemma nætur en stundum undir morgun. Hann var svo fyrirferðamikill að það var varla svefnsamt þegar hann slengdi höndum og fótum í kringum sig, steinsofandi. Það var honum svo eðlilegt að sofa í okkar rúmi að hann var farinn að spá í það hvenær Almar Freyr mætti líka byrja að sofa í okkar rúmi!!

Eftir mikla baráttu tókst okkur að venja hann á að sofa í sínu rúmi, alveg frá því að hann sofnar á kvöldin þangað til hann vaknar um morguninn.

Almar Freyr kemur stundum upp í rúm til okkar milli kl 5 og 6 á morgnana. Hann birtist í hurðinni með bangsa, kodda, sæng og snuddu og á í mestu vandræðum með að halda á þessu öllu í einu. Við kippum honum uppí því við nennum ómögulega að vakna svona snemma.

Þegar Almar er búinn að skríða uppí fattar maður svo hvað það er nú ósköp gott að hafa mjúkan púka í rúminu til að kúra, og í raun sakna ég þess a.m.k. að hafa ekki Frank eða Almar í rúminu. En þá rifja ég upp kjafts- og olnbogahöggin sem Frank var farin að gefa í svefni með handasveiflunum og sé að þetta er auðvitað bölvuð tálsýn, en ég sakna þess samt.

Styrktarfélagar flugfélaga
Flugfélög eru ótrúlegar stofnanir. Býst við að fá önnur fyrirtæki gætu leyft sér að taka viðskiptavini jafn illilega í rassgatið með bros og vör og látið viðskiptavini áfram versla við sig.

Robbi bróðir og Anna mágkona hafa verið einstaklega óheppin á þessu ári þegar kemur að flugferðum, niðurfellingu á flugferðum, breytingargjöldum og öðrum gjöldum flugfélaga. Anna bjó í París síðasta vetur og núna búa þau í Sviss.

Hrakfallasaga flugferða byrjaði í vor þegar Anna ætlaði að koma heim frá París og eldfjall á Íslandi tók uppá því að stöðva alla flugumferð í Evrópu með gosösku í háloftunum. Anna átti pantað flug heim frá París á fyrstu dögum gosins og allt flug meira og minna lamað í norðanverðri- og mið-Evrópu. Flugið hennar milli Parísar og Íslands var fellt niður og til að komast til Íslands tók hún rútu frá París til Kaupmannahafnar með ærnum tilkostnaði. Ef ég man rétt þá breytti flugfélagið miðanum fyrir hana annaðhvort frítt eða fyrir lítin pening þar sem þetta var þeirra aðgerð að fella niður flugið.

Þegar Robbi ætlaði svo að koma heim um síðustu mánaðamót frá Genf með millilendingu í London þá byrjaði að snjóa svo rosalega í Sviss og flugvöllurinn í Genf lokaðist í nokkra daga. Flugfélagið sem Robbi hafði pantað hjá flug milli Genfar og London felldi niður flug dag eftir dag með þannig lagað stuttum fyrirvara. Robbi þurfti að breyta flugmiðanum frá London til Keflavíkur þrisvar sinnum og borgaði bæði uppfærslu og breytingagjöld í hvert skipti þar sem því flugfélagi var alveg sama um vandræðin í Genf. Kostnaðurinn við þessar æfingar var í kringum 100þ kr fyrir Robba.

Ekki tók betra við núna í þessari viku þegar Anna ætlaði að koma heim frá Genf sömu leið. Í stað þess að Genf væri lokað þá var Heatrow í London lokaður. Flug felld niður og/eða seinkað. Hún vissi ekki hvort hún kæmist til London á annan flugvöll en Heathrow, en þá var annað vandamál sem var hvort hún kæmist á milli flugvalla og hvort hún kæmist hreinlega frá London til Íslands. Tímaramminn hennar var þrengri en Robba þar sem aðeins 3 dagar voru til jóla og mun fleiri á ferðinni en í byrjun mánaðarins. Lausnin var því að henda flugmiðunum í gegnum London og panta flug til Kaupmannahafnar og áfram til Keflavíkur. Kostnaðurinn? Jú, litlar 150 þúsund krónur takk fyrir.

Í engu þessara skipta hafa flugfélögin verið tilbúin að hnika nokkuð til verðskrám eða breytingagjöldum heldur rukka fullt verð fyrir, vitandi það að ferðalangar hafa ekkert val. Ferðaáætlanir eru gerðar með löngum fyrirvara og það er bara “bad luck” fyrir fólk að það komi snjór sem lokar flugvöllum.

Ein leið til að velja frambjóðendur til stjórnlagaþings.
Ég ætla ekki að kjósa í stjórnlagaþinginu á laugardaginn. Nenni hreinlega ekki að spá í frambjóðendurna. Svo er hitt auðvitað líka þáttur að þetta eru allt Íslendingar sem eru í framboði, og ég hef áður lýst þeirri skoðun minni að Íslendingar kunna sér ekki forráð, hvorki í stjórnmálum né fjármálum. Þess vegna vil ég ekki kjósa Íslendinga til að endurskoða stjórnarskrána þannig að aðrir Íslendingar geti svo hunsað breytingarnar á Alþingi.

En fyrir þá sem ætla að kjósa, og nenna ekki að velja frambjóðendur þá er hægt að nota teningaleiðina til þess. Hún fellst í því að nota tening til að velja frambjóðendur. Þá er kastað 4 sinnum fyrir hvern frambjóðanda og tölurnar skrifaðar niður. Það er smá hængur á þessari aðferð, en teningur hefur eðli málsins samkvæmt ekki núll (0), og flestir teningar eru aðeins upp í sex (6). Hægt er að bregðast við þessu með því að nota vefsíðu sem heitir Virtual Dice og velja þar 10 hliða tening. Til að bregðast við núll leysinu þá er 10 notað sem núll.

Það fer svo eftir þinni þolinmæði hve oft þú nennir að kasta, hvort þú velur einn frambjóðanda eða alla 25.

Bara strákar
Það er furðulegt hvernig genin ákveða kynið. Það er nokkuð merkilegt að í ættinni hans pabba, þ.e. frá ömmu og afa, þá hafa karlmenn aðeins eignast stráka.

Pabbi á 3 börn – allt stráka.

Ég á 2 börn – stráka.

Maggi bróðir á 1 barn – strák.

Robbi bróðir á von á barni – strák.

Hlynur bróðir pabba á 2 börn – stráka.

Steini, systursonur pabba á 2 börn – stráka.

Hlynur, systursonur pabba á 1 barn – strák.

Systur pabba hafa eignast bæði stráka og stelpur, en engin af þeim strákum hefur eignast stelpu. -Stelpurnar hafa aftur á móti eignast bæði stráka og stelpur, en strákar eru í meirihluta.

Getur verið að genin séu svona rosalega sterk að stúlkur komist hreinlega ekki að??