vefblogg.com » Strákarnir

Mikil spenna hjá strákunum fyrir jólunum
Núna þegar aðeins 4 dagar eru til jóla eru strákarnir á yfirsnúning af spenning fyrir jólunum.

Þeir eru búnir að telja niður dagana frá því í byrjun nóvember, Frank Gabríel með heimagerðu dagatali sem var með 15 reitum til að stimpla í. Sem betur fer hætti hann að stimpla eftir aðeins 6 daga þannig að jólin eru ekki alveg komin samkvæmt því dagatali. En hefðu verið komin um miðjan nóvember ef hann hefði stimplað daglega.

Desember er búin að vera annasamur mánuður bæði í Vatnsendaskóla og í Sólhvörfum. Þeir eru búnir að föndra skraut, syngja, leika og gera jólagjafir. Almar er alltaf að leiðrétta bróður sinn sem syngur jólalögin ekki alveg rétt, er búin að læra breyttar og aðeins fullorðinslegri útgáfur af jólalögunum. Sem dæmi þá syngur Frank alltaf “Jólasveinar ganga um gólf með geislasverð í hendi, móðir sópar gólf og flengir þá með sverði“, og þá segir Almar “Jank jú ejjjt að ynjga etta vitlaust”.

Jólagjafirnar komu heim í þessari viku, mikill spenningur hjá báðum og annar (Almar) vill opna hana strax, svo spenntur er hann. Þegar við spyrjum hvort að það megi opna gjöfina strax svarar hann að það eigi að gera það á jólunum. Efast um að hann viti hvað það þýðir, en gott að kennararnir í leikskólanum innprentuðu það í börnin.

Þeir fengu báðir tvö dagatöl, eitt súkkulaði dagatal frá ömmu Ingu og afa Frank, og eitt Lego Star Wars (Frank) og Playmo Riddara (Almar). Lego dagatalið kostaði helmingi meira en Playmo dagatalið, en innihaldið í Playmo er tvisvar sinnum veglegra en í Lego dagatalinu. Frank er eiginlega farin að öfunda Almar af öllu Playmo dótinu sem kemur úr hans dagatali.

Jólasveinarnir koma við á hverju kvöldi í gluggunum hjá þeim og gefur í skóinn. Það er mikill spenningur að sjá hvað er í skónum að morgni, svo mikill spenningur að það er vaknað fyrir allar aldir og kíkt í skóinn. Hafa strákarnir vakið hvorn annan við að hlaupa inn í herbergi hjá hinum að athuga hvað er í skónum hjá honum og hvort það sé flottara en það sem viðkomandi fékk. Jólasveinninn sem kemur í þessa glugga gefur yfirleitt það sama í báða skóna til að skapa ekki ósætti milli bræðranna.

Frank fór á litlu jólin í morgun í Vatnsendaskóla. Mikill spenningur fyrir því, en litlu jólin fengu falleinkunn hjá honum því það mætti bara alls engin jólasveinn. Það líkaði mínum manni ekki. Litlu jólin í leikskólanum hjá Almari voru fyrir viku síðan og þar mætti jólasveinn í fullum skrúða, við miklar vinsældir.

Það er semsagt nóg um að vera á þessu heimili fyrir jólin og mikill spenningur.

Jólafrí, vetrarfrí, páskafrí, sumarfrí, foreldrafundir og starfsdagar.
Það er merkilegt að eiga barn á fyrsta ári í grunnskóla. Það er eins og skólastjórnendur haldi að foreldrar barna eigi ótakmarkaða frídaga. Og þá á öðrum tíma en yfir sumarið.

Fyrst ber að nefna 2,5 mánaða sumarfrí. Það er frá ca 6. júní til 22. ágúst. Samtals ca 50 dagar.

Næst ber að nefna vetrarfrí. Bæði fyrir og eftir áramót eru þrír dagar, samtals sex.

Þá er komið að jólafríinu. Skólinn hjá Frank fer í frí eftir þriðjudag, en þá eru litlu jólin. Jólafríið er þá 9 virkir dagar.

Páskafrí er 3 virkir dagar.

Starfsdagarnir og foreldrafundir eru minna mál því þá er dægradvölin (pössun í skólanum) opin frá 8.10 til 17.00.

Ofantalið, að undanskildu sumarfríinu, starfsdögum og foreldrafundum, eru 18 virkir dagar sem foreldrar þurfa að taka sér frí eða redda pössun eftir öðrum leiðum. Samtals gera þetta ca 68 daga, með sumarfríi, en flest fólk sem er að vinna er með 24 til 30 daga í sumarfrí. Þá vantar 8 daga samt uppá, og þá er ekki gert ráð fyrir að hjón taki neina frídaga saman.

Í leikskólanum var þetta auðveldara. Eða þannig. Þar fer leikskólinn bara í 4 vikna sumarfrí og lokar yfir hásumarið, og er með svo ca 8-10 starfsdaga yfir veturinn.

Frank Gabríel keppti með HK í morgun gegn KR
Það var aldeilis spenntur 6 ára strákur sem vaknaði í morgun á þessu heimili. Klukkan 5:30 nákvæmlega, svo spenntur var hann. Ástæðan fyrir spenningnum var sú að flokkurinn hans í HK átti að keppa í fótbolta við jafnaldra úr KR í Kórnum.

Við fórum öll af stað um klukkan 8.30 til að ná örugglega í Kórinn á réttum tíma. Þegar við komum í Kórinn var hópnum skipt á þrjá velli, og fóru 3 leikir samtímis fram.

Það er skemmst frá því að segja að Frank Gabríel og liðið hans vann fyrsta leikinn 2 – 1, og var það glæsilegur árangur miðað við ringulreiðina sem ríkti inni á vellinum.   Öðrum leiknum tapaði liðið hans Franks svo 1-0, og var hann ekki alveg jafn sáttur við þau úrslit.

Meðfylgjandi eru nokkrar myndir frá leikjunum.

Námskynning í Vatnsendaskóla í morgun
Fórum öll fjölskyldan í Vatnsendaskóla í morgun á námskynningu milli 8.10 og 9.10.

Þegar við mættum í skólann tók kennarinn hans Franks á móti bekknum og útlistaði hvernig námskynningin ætti að vera. Hún fólst í að börnin áttu að sína foreldrum sínum hvað þau eru búin að læra hingað til og hvað þau munu læra í vetur.

Það var gaman að sjá skólann fullan af lífi því þegar við Ösp höfum farið í skólann þá er það annaðhvort áður en skólastarfið hefst á daginn eða eftir að því líkur.

Frank Gabríel er orðinn góður í að gera bók- og tölustafi, hann er búinn að vera í handmennt (textílmennt kallast það víst í Vatnsendaskóla) og gerði þar rosalega flott útsaumað stykki. Við fórum á bókasafnið og röðuðum upp taflmönnum, skoðuðum myndir á göngunum og margt fleira.

Almar fór með skólatösku á bakinu því hann var að fara í skólann með Frank Gabríel. Í töskunni voru, áður en Ösp sagði honum að hann ætti að fara með bækur, Bangsímon og fleira dót. Hann tók það út og setti eina STÓRA bók í staðinn.

Sumarfríið 2011
Já það er búið að vera langt hlé á skrifum hér. Eiginlega of langt til að ég nenni að fara af stað aftur en ég verð að láta slag standa og skrifa eitthvað til að staðna ekki alveg og/eða hætta. Facebook er eiginlega búin að taka við svona daglega tuðinu og því sem mér liggur á hjarta hverju sinni.

Þegar ég skrifaði síðustu færslu, Duglegur um helgina, bjóst ég alls ekki við að tæpir 2 mánuðir myndu líða uns ég skrifaði næstu færslu! En það er þó raunin. Ég skrifa það á málstolið og það hve hægt mér gengur að skrifa. En ég ætla að reyna.

Við fórum til Bolungarvíkur í lok júní í samfloti með mömmu og pabba. Frank Gabríel hafði farið viku áður með tengdó Vestur til að gista hjá Inga og Oddný á Suðureyri og taka þátt í leikjanámskeiði á vegum Íþróttafélagsins Stefnis. Þar brallaði hann margt sniðugt, dorgaði m.a. og fór yfir Súgandafjörð á tuðru frá björgunarsveitinni á staðnum yfir á Norðureyri.

Við nýttum föstudaginn fyrir Vestan vel; fórum um morgunin út á sjó á bátnum hans Leifa tengdapabba. Sáum þar hrefnu sem væntanlega var að gæða sér á síldar- eða makríltorfu því hún kom upp á yfirborðið ítrekað.

Eftir hádegið fórum við á Tjöruhúsið á Ísafirði sem er besti, ég ítreka, BESTI fiskveitingastaður á Íslandi. Fengum það brjálað góðan fisk sem borinn var fram í stórri steikarpönnu. Veit ekki hvaða fiskur var í réttinum -ég giska á rauðspretta eða karfi- en meðlætið á pönnunni samastóð af sítrónum, kartöflum, vínberjum, sveppum og nokkrum öðrum sem ég kann ekki að nefna (sjá mynd). Þetta var virkilega góður fiskur, eða eins og ég sagði hér að framan, brjálað góður!

Á laugardagskvöldinu hélt Leifi tengdapabbi uppá 60 ára afmælið sitt -degi of snemma (2. júlí -á afmæli 3. júlí). Það var fínasta veisla; mikið um ræðuhöld, söng, skemmtiatriði og vel veitt í mat og drykk.

Barnabörnin hans sungu fyrir hann afmælissöngin og Bahama með Ingó og Veðurguðunum og gerðu það extra vel. Að öðrum ólöstuðum stóð Frank Gabríel sig frábærlega, tók forsöngin mjög alvarlega eins og sjá má á myndinni (heldur á míkrafóninum alveg upp að munninum).

Myndin hér til hliðar er dæmigerð fyrir uppátækin í Gunna svila og hvernig tengdapabbi tekur þeim. Gunni er semsagt þekktur í fjölskyldunni fyrir Jakob (Jáákúúp) sem á að vera pólskur innflytjandi á Íslandi og hefur hann tekið ófáar rispurnar með honum. Hann tók ekki Jakob í veislunni heldur fjarskyldan frænda hans og tókst líka svona ljómandi vel upp. Mætti í fötum af tengdapabba sem hann stal úr bílskúrnum hjá honum og vildi skila þeim aftur með þökk fyrir lánið.

Eftir að formlegri dagskrá lauk fór að týnast úr veislunni en harðasta fólkið sat til að ganga 2 um nóttina! Geri aðrir betur!

Sunnudagurinn var ekki alveg jafn góður og laugardagurinn, skemmtiskatturinn var að taka sinn toll og hann mátti það alveg! Við vorum því öll ansi löt og eyddum deginum bara í þynnku.

Á mánudeginum fóru mamma og pabbi aftur suður, sem og aðrir gestir sem gistu hjá tengdó, en þau voru með alls 10 næturgesti sem gistu í þremur herbergjum inni í húsinu og í tveimur tjaldvögnum í garðinum.

Vikuna notuðum við í afslöppun. Veðrið var mjög gott á meðan við vorum fyrir Vestan og brölluðum við margt og mikið. Fórum í Raggagarð í Súðavík, fórum uppá Bolafjall, heimsóttum Ásu og Gunna á Ísafjörð, Inga og Oddný á Suðureyri og margt fleira.

Sund var stundað stíft meðan við vorum fyrir Vestan, fórum þrisvar eða fjórum sinnum í sundlaugina í Bolungarvík og einu sinni á Suðureyri.

Tengdapabbi lenti í því að brjóta drifið á bátnum. Var dreginn í land og missti einn dag úr strandveiðunum. Hann pantaði að sunnan nýtt drif og kom það með flugi samdægurs og var skrúfað á bátinn um kvöldið. Hann lagði svo í’ann kl 6 næsta morgun á miðin.

Á fimmtudeginu lögðum við að stað áleiðis norður á Sauðárkrók því við ætluðum og vera á ættarmóti þar um helgina. Stoppuðum í sundi í Reykjanesi við Ísafjarðardjúp og létum líða úr okkur ferðaþreytuna. Sundlaugin þar er náttúruleg og mjög fín. Gistum í Bjarkarlundi í tjaldvagninum og skoðuðum Læðuna úr Vaktarseríunum. Keyrðum svo sem leið lá yfir Laxárdalsheiði niður í Hrútafjörð og stoppuðum í sundi á Blönduósi áður en við komum á Sauðárkrók.

Ættarmótið var ljómandi gott en það sama verður ekki sagt um veðrið; rok og 4-6 gráðu hiti á norðvesturlandi þessa helgi. Formlegheitunum var ekki fyrir að fara á þessu ættarmóti heldur kom hver með sitt og sína. Milli 60 og 70 manns skráðu sig þó í gestabók.

Á Sauðárkróki er skátafélag, Andvari, sem afi Franch tók þátt í að stofna árið 1929, þá 16 ára gamall. Ég fór með pabba, mömmu, Lilju og Sigga að skoða dótið sem afi ánafnaði skátafélaginu bæði í lifanda lífi og eftir andlát sitt. Það var mjög gaman að sjá skátadótið hans afa í öruggum höndum.

Eftir Sauðárkrók fórum við á Hofsós og vorum þar í 3 nætur í einbýlishúsi sem er í eigu fjölskyldu einnar skólasystur minnar úr Háskólanum á Akureyri. M+P og Maggi og Arna komu með okkur á Hofsós og gistu þau í 2 nætur. Sundlaugin á Hofsósi var óspart notuð, sundlaugarstæðið er engu líkt og snjallt að láta vatnsyfirborðið á sundlauginni nema við hafflötinn þegar horft er í átt að Drangey. Búningsklefinn er aftur á móti ekki alveg jafn góður…

Við fórum í stuðlabergsvíkina á Hofsósi neðan við sundlaugina og var þar rosalega fallegt. Kíktum í bíltúr á Siglufjörð og gengum um bæinn. Skoðuðum Síldarminjasafnið fyrir 2 árum þannig að því var sleppt í þetta skiptið, en gengum um hafnarbúðirnar og miðbæinn á Siglufirði. Skemmtilegt hvernig búið er að gera upp hafnarbúðirnar í gömlum stíl að utan (og innan).

Eftir að hafa rúllað í bæinn vissum við Ösp ekki alveg hvað við áttum að gera af okkur. Vissum að Ingi og Oddný væru á leið í bústaðinn hjá ömmu og afa Aspar undir Mosfelli í Grímsnesi þannig að við stoppuðum bara í 2 daga heima áður en við héldum aftur út úr bænum. Þar tjölduðum við tjaldvagninum og gistum frá föstudegi til þriðjudags í góðu yfirlæti. Fórum í sund á Borg eða Aratungu á (næstum) hverjum degi ásamt bíltúrum um nærsveitir. Kíktum m.a. á Bylgjulestina á Flúðum á laugardeginum, Robba og Önnu ásamt Arnóri Bjarka í bústað rétt hjá Flúðum á sunnudeginum, Gullfoss og Geysi o.fl.

Það var tekið hart á pottinum og hann stundaður á hverju kvöldi. Í misjöfnu ásigkomulagi…

Krakkanir fóru oft í pottinn og fylgdi því mikið skvabb og busl.

Strákarnir prófuðu sláttutraktor og fannst það mjög skemmtilegt. Frank Gabríel keyrði alveg sjálfur en Almar Freyr fékk Inga frænda til að sitja undir sér.

Einar í næsta bústað kom með hesta og leyfði krökkunum að prófa að fara á bak, sem og afa Bjössa! Krakkarnir fóru öll á sama hestin en afi Bjössi fékk að fara einn á bak!

Vikuna 22. júlí til 29. júli vorum við í bústað á Apavatni sem er í eigu RSÍ. Svæðið á Apavatni er alveg meiriháttar og bústaðurinn líka. Mamma og pabbi gistu hjá okkur eina nótt og svo komu tengdó og gistu hjá okkur í þrjár.

Við Frank Gabríel fórum út á Apavatn á árabát og öðrum aðilanum fannst það hrikalega gaman, en þeim sem sá um að róa fannst það ekki alveg jafn gaman!

Tengdapabbi kom með veiðidót þannig að við fórum að veiða og Frank Gabríel veiddi maríu-fiskinn sinn, eins punda urriða. Frank veiddi að lokum 3 fiska sem við höfðum í kvöldmat eitt kvöldið! Gott að hafa léttan kvöldmat eftir allt grill-dæmið sem var í gangi.

Leiksvæðið á Apavatni var ópart nýtt þá daga sem ekki rigndi og þá sérstaklega ærslabelgurinn og aparólan. Strákarnir voru duglegir að leika saman en mamman kom og skemmdi svolítið fyrir! (sjá mynd)

Í sumarfríinu fórum við í Salalaug í Kópavogi, Laugardalslaug, Lágafellslaug í Mosfellsbæ, Álftaneslaug, Sundlaugina á Borg, Sundlaugina í Aratungu, Sundlaugina á Laugarvatni, Sundlaugina í Bolungarvík, Sundlaugina á Suðureyri, Sundlaugina á Blönduósi, Sundlaugina á Sauðárkróki, Sundlaugina á Hofsósi og Sundlaugina í Reykjanesi við Ísafjarðardjúp. Ég vona að ég sé ekki að gleyma neinni sundlaug, en í sumar fórum við oftar en einu sinni og oftar en tvisvar.

Þá fer yfirferðinni yfir sumarfríið að ljúka, aðeins Berlínarferðin eftir sem fjallað verður um næstu færslu (sem verður vonandi ekki eftir 2 mánuði).

8. maí 2011
Hmm. 8. maí 2011. Það þýðir að það eru komnar einar 3 vikur sýnist mér síðan ég bloggaði síðast.

Auðvitað er eins og alltaf margt og mikið búið að gerast á þeim tíma -og síðasta færsla var ekki um daglega lífið heldur bíómynd sem ég fór á með Hlyni frænda.

Í millitíðinni komu eitt stykki páskar sem við nutum í leti fyrir vestan hjá tengdó. Það var smá stress að komast þangað því heilsársdekkin á Súbbanum eru komin nærri því að teljast bærileg sumardekk og veðurvitarnir sem stýra snjókomu á Íslandi voru ekki alveg á því að sleppa Íslandi úr snjókomu þó komið væri langt fram í apríl (en páskarnir voru extra seint í ár (er að skrifa þetta til að ég muni eftir tímasetningu páskanna þegar ég les þessa færslu eftir nokkur ár)).

Tengdamamma var búin að fylla frystikistuna af heimabökuðum snúðum, gulrótartertum, skúffukökum og öðru góðgæti sem þrátt fyrir metnarfullar tilraunir okkar þá tókst ekki að koma öllum heimabakstrinum fyrir kattarnef!! En vigtin lét alveg vita að góðgætið hefði ekki verið án fórna.

Við fórum á Aldrei fór ég suður tónlistarhátíðina, hlustuðum á góð bönd fremja sína gjörninga á sviðinu hjá KNH og nutum þess sem Ísafjörður hafði uppá að bjóða.

Eftir páska hefur veðrið verið svona og svona, helgina 30 apríl til 1 maí snjóaði alveg óendanlega mikið á suðvesturhorninu og mesti snjór í maí síðan 1987 var staðreynd; heilir 16,5 cm jafnfallinn. En snjórinn stoppaði stutt við og á mánudagskvöld var snjórinn farinn og sumarið komið. Það hefur þýtt að Frank Gabríel er hættur að sjást heima hjá sér. Hann setur á sig hjólahjálminn eftir leikskóla og er farinn. Við sjáum hann svo 2 tímum síðar þegar hann kemur að fá eitthvað að borða, og verður ferlega fúll að mega ekki fara aftur út eftir kvöldmat að leika við vini sína. Almar er ekki alveg jafn kræfur, hann lætur sér nægja að tuða í foreldrum sínum að koma út á róló að ýta sér í rólu.

Almar er (líklega skilst mér) að fá sendingu að Vestan, 12″ reiðhjól til að æfa sig á. Frank fær svo í afmælisgjöf 20″ 6 gíra hjól sem við keyptum notað fyrir hann.  Þeir verða flottir bræðurnir hjólandi um allt hverfið, en sá litli gerir ALLT það sama og stóri bróðir. Hetjufyrirmyndin í stórum bróður er sterk og maður sér það alla daga hvað litlir bræður líta upp til stórra bræðra.

Sambærilegur Ægisvagn

Í vikunni fór ég og sótti tjaldvagn sem við Ösp keyptum í vetur. Ákváðum að yngja aðeins upp tjaldvagninn sem við keyptum í fyrrasumar – yngdum upp um heil 23 ár!! Nýji vagninn er svokallaður Ægisvagn, 2003 árgerð, meðan sá gamli er Combi Camp, 1980 árgerð (teljum við m.v. skráningarskírteinið).

Munurinn á vögnunum er mikill, felst fyrst og fremst í hönnuninni á þeim og í hvaða átt þeir opnast. Sá gamli opnaðist aftur, var langur og mjór með rúmi fyrir 2 og svo koju (ótrúlegt en satt) en sá nýji opnast til hliðar og geta 4 sofið á dýnu í honum.

Það þarf að ditta að einu og öðru í nýja (nýrri) vagninum og ætla ég að dunda við það næstu kvöld að skipta um fætur og legur og mála svo undirvagninn, beislið og felgur.

Það verður gaman að taka upp þráðinn frá síðasta sumri í útilegum, en mig minnir að Ösp hafi talið saman 7 útileguhelgar hjá okkur í röð í fyrra. Nú þegar eru komnar nokkrar útilegur á dagatalið og búið að úthluta öllum helgum sýnist mér. Verst að sumarið og sumarfríið er ekki alveg nógu langt til að rúma allt sem mann langar til að gera.

Góða veðrið í dag.

Dagurinn í dag er einn af þessum frábæru dögum. Sólin vakti mann í morgun með sinni birtu og hita. Við drifum okkur strákarnir í pottinn hjá ömmu og afa í Raufó og það sló eiginlega tóninn fyrir daginn. Sól, pottur, sól og pottur. Sulluðum í pottinum frá 11 til 13, þá kom Elsa og stelpurnar í heimsókn í Raufó og slógust þær í potta-hópinn, eftir að við höfðum gætt okkur á handhnoðuðu (en ekki hvað) brauði og gúmmelaði frá Jóa Fel. Skutumst svo í afmæli hjá Brynjari Erni í Korputorg í hoppukastala-dæmið þar. Fórum svo aftur í Raufarsel og þá var búið að bætast við gestaganginn í garðinum. Fórum aftur í pottinn og svo voru grillaðir borgarar í kvöldmatinn. Ösp stakk af í bíó en við strákarnir urðum eftir þar sem Frank og Almar djöfluðust í garðinum til kl 21.20 þegar ég dró þá nauðuga út í bíl til að fara heim að sofa.

Veikindapésar
Síðastliðin vika er búin að fara í umsjá með veikindapésa á þessu heimili. Frank Gabríel er búinn að vera með flensu alla vikuna og við Ösp skipt með okkur að vera með honum heima, ásamt því sem mamma kemur að leysa okkur af seinnipartinn þegar hún er búin í vinnunni.

Það er ótrúlegt hve táp- og fjörmikill drengur eins og Frank Gabríel er verður dasaður og eins og slytti þegar hitinn fer í 38,9°. Hann liggur bara fyrir og sefur heilu eftirmiðdagana í stað þess að leika sér, teikna, hlaupa og það sem hann gerir dags daglega.

Til að kóróna svo ástandið á heimilinu þá tók Almar Freyr uppá því á miðvikudaginn að detta á hausinn í leikskólanum og fá sár á ennið sem þurfti að laga uppi á Slysó. Það var því mikið púsl að koma því öllu heim og saman; vinnu, yfirsetu yfir Frank og ferð á Slysó með Almar.

Frank er að verða góður, er kominn niður fyrir 38° en þá er kominn ljótur hósti í Almar þannig að við krossum putta og vonum að hann sé ekki líka að veikjast.

Helgin
Síðastliðin helgi var ótrúlega skemmtileg hjá okkur Frank Gabríel. Við drifum okkur á skauta í Skautahöllinni í Laugardal á laugardaginn og á sunnudag drógum við afa Frank og Pjakk með okkur í Guðmundarlund sem er náttúruperla hérna rétt hjá.

Við vorum búnir að stefna lengi á að fara saman á skauta. Frank Gabríel finnst klaki og hálka ótrúlega merkilegt fyrirbæri og nýtir hvert tækifæri þegar hann kemst í tæri við klara á bílaplönum eða annarstaðar til að renna aðeins. Skautasvell var því eins og himnaríki fyrir honum… þangað til hann steig út á svellið á skautum því það var, eins og við var að búast, hált. Datt á rassinn og vildi fá stuðningsgrind til að skauta með. Hann skemmti sér mjög vel, var duglegur að renna sjálfur og fann fljótt út hvernig átti að koma sér áfram: tippla á tánum og renna svo aðeins áfram.

Ég var nokkuð fljótur að rifja upp gamla takta á skautum. Ótrúlegt að liðin séu 19 ár frá því að ég var heilt sumar á línuskautum rennandi um allan bæ. Sumarið 1992 var ekki búið að byggja yfir skautasvellið í Laugardal og það var opið fyrir línuskautun. En allavega þá datt ég ekki í gær á skautunum.

Í Guðmundarlundi var ekki síður skemmtilegt. Yfir grasinu þar var klakabrynja sem hægt var að renna sér á, hoppa á til að brjóta og svo stíga í gegn og lenda með fótinn í polli. Frank Gabríel gerði þetta allt saman margoft og gegnbleytti fötin sín að sjálfsögðu. Skipti samt engu því veðrið var yndislegt; sól, logn og hiti.

Allt hitt sem alltaf er svo heillandi við Guðmundarlund var auðvitað líka til staðar og skemmtum við okkur þarna saman í tæpa 3 klukkutíma.

Fallegu strákarnir mínir
Ég held að maður þreytist seint á að dásama börnin sín.

Þeir bræður Frank og Almar eru eins kannski ekki eins og svart og hvítt en ólíkir eru þeir. Við Ösp eigum einn þeirra hvort (útlitslega).

Pabba og afa-dagur á leikskólanum í tilefni af Bóndadegi
Leikskólinn hjá Frank & Almari býður pöbbum og öfum í morgunmat á Bóndadaginn. Í tilefni af Þorra er víkingaþema hjá börnunum.

Meðfylgjandi er mynd af Frank og Natan vini hans. (smelli inn mynd af Almari síðar af stóru myndavélinni)