vefblogg.com

33,3% verðhækkun á sundkortum hjá Kópavogsbæ
©photo.is

Sundlaugarnar hafa verið stundaðar grimmt undanfarnar vikur á meðan strákarnir hafa verið í fríi.

Við áttum 30 miða kort í Kópavogslaugarnar sem keypt var í febrúar 2009 og kláraðist það í vikunni. Í febrúar 2009 kostaði 30 miða kort 5.250 kr. Núna greiddi ég 7.000 kr fyrir samsvarandi kort. Það er 33,3% hækkun. Ég nefndi við afgreiðslustúlkuna hvað þetta væri orðið dýrt, og hún réttlætti þessa verðhækkun með að verð á stökum ferðum hefur hækkað úr 280 kr í 350 kr, sem er 25% hækkun.

Mér finnst 25% hækkun á sundferð mikil hækkun, og hvað þá 33,3% hækkun!!

<fb:like layout="standard" show_faces="true" action="like" font="arial" colorscheme="light"  href="http://www.vefblogg.com/2010/08/333-verdhaekkun-a-sundkortum-hja-kopavogsbae/" width="200"></fb:like>

Þjóðhátíð – 18.000 gestir?
Ég hef farið nokkrum sinnum á Þjóðhátíð í Vestmannaeyjum. Í ein fjögur skipti ef minnið er ekki að bregðast mér. Gestafjöldinn í þau skipti sem ég hef farið hefur verið í kringum 9.000 manns. Öll skiptin fór ég áður en sviðinu var snúið og  “Brekkunni” breytt.

Í öllu falli þá er það mitt mat, að Vestmannaeyjar bera ekki mikið fleiri gesti en 9-10 þúsund. Bærinn er fullur af fólki, veitingastaðir eru fullir af fólki, bekkjarbílar eru fullir af fólki, Dalurinn er fullur af fólki og allt sem fæst keypt á annað borð -matur, veitingar, þjónusta- er á tvöföldu verði.

Sé þessi gestafjöldi næstum tvöfaldaður -í 18.000 gesti- er hætt við að þessi sjarmi sem er á Þjóðhátíð í Vestmannaeyjum hverfi. Þetta verði bara kraðak af fólki að troðast fram og aftur um svæðið leitandi að lausu klósetti.

Ég er heldur ekki viss um að tíðar ferðir Herjólfs milli Eyja og Landeyja séu af hinu góða varðandi Þjóðhátíð. Í fyrsta skiptið sem ég fór á Þjóðhátíð ’96 tókst mér að týna peningunum mínum á laugardeginum, bjórinn var volgur, hamborgararnir súrnuðu í töskunni og það rigndi eldi og brennistein. Ég gerði því tilraun til að fara heim á sunnudagsmorgninum þegar ég vaknaði, en Herjólfur var þá farinn (einu) ferðina til Þorlákshafnar þann daginn. Ég gerði því gott úr hlutunum og djammaði af mér rassinn um kvöldið og skemmti mér konunglega með Ragga vin. Eftirá, hefði ég ekki viljað fara heim á sunnudeginum. Ef Herjólfur aftur á móti hefði farið 5 ferðir þann dag eins og hann mun sennilega gera næsta sunnudag, hefði ég farið heim áður en Þjóðhátíð var búin.

Ég tel að ÍBV ætti að reyna að takmarka fjöldann á Þjóðhátíð með einhverjum hætti. Einhver háttur er auðvitað að selja FÆRRI miða í Dalinn. Fleiri miðar þýða auðvitað meiri tekjur, og Þjóðhátíð er vissulega tekjupóstur fyrir ÍBV. Ef ætlunin er að græða sem mest er skiljanlegt að sem flestir miðar eru seldir. En eins og ég nefndi hér að ofan fer sjarminn af Þjóðhátíð með 18.000 gestum. ÍBV getur þá farið þá leið fækka miðum og hækka miðaverð til að fá samsvarandi tekjur af 12.000 miðum og 18.000 miðar gefa í dag. Til að koma í veg fyrir brask með miða þyrfti þá að gefa þá út á nafn (t.d. í gegnum Miða.is). ÍBV gæti líka sýnt alvöru virðingu gagnvart Þjóðhátíð og gefið út 12.000 miða, hætt að horfa á gróða út í eitt og haldið miðaverði eins.

<fb:like layout="standard" show_faces="true" action="like" font="arial" colorscheme="light"  href="http://www.vefblogg.com/2010/07/thjodhatid-18-000-gestir/" width="200"></fb:like>

Sumarfrí með Almari Frey
Á leið í sund í góða veðrinu.

Leikskólinn fór í sumarfrí hjá Almari um síðustu helgi, Ösp er ennþá að vinna, fer ekki í frí fyrr en eftir Verslunarmannahelgi og Frank Gabríel er fyrir Vestan hjá tengdó (eins og lesa má um hér). Fyrir vikið erum við feðgarnir búnir að eiga æðislega viku saman í rólegheitum.

Veðrið hefur verið þannig að sundferðir hafa verið ofarlega á stefnuskránni og höfum við farið í sund á hverjum degi, en aldrei sömu laugina!

Við erum búnir að kíkja í Grasagarðinn í Laugardal með ömmu Ingu, búnir að spóka okkur í bænum, búnir að kíkja á róló og leggja okkur um hádegisbil (Almar inni í rúmi, ég í sólinni á svölunum).

Það er munur að vera með Almar Frey núna m.v. í september í fyrra þegar ég var í fæðingarorlofi með hann. Þá var hann svo lítill að fátt var hægt að gera með honum og hann varð að vera kominn í rúmið kl 12 á hádegi. Núna er hægt að dunda með honum endalaust, syngja, fara í göngutúra og fleira skemmtilegt.

Í næstu viku verður Frank Gabríel svo með okkur og þá er stefnan auðvitað sett á sund á hverjum degi, og ætla ég í Vatnaveröldina í Reykjanesbæ með þá ásamt innileikgarðinn á Ásbrú. Þarf samt að finna út hvernig best er að púsla því saman með svefninn hjá Almari sem slítur dagana svolítið í sundur. Fjölskyldu- og húsdýragarðurinn er auðvitað líka á dagskránni, en þar spilar veðrið meira inní en í sundinu.

<fb:like layout="standard" show_faces="true" action="like" font="arial" colorscheme="light"  href="http://www.vefblogg.com/2010/07/sumarfri-med-almari-frey/" width="200"></fb:like>

Frank Gabríel ekkert á heimleið
Við fórum Vestur á firði í síðustu viku,  stoppuðum í Bolungarvík hjá tengdó í 2 daga og fórum svo á ættarmót á Núpi í Dýrafirði.

Áður en við fórum Vestur vorum við búin að biðja tengdó um að vera með Frank Gabríel hjá sér þessa vikuna, leyfa honum að eiga gæðatíma með ömmu og afa fyrir Vestan og auðvitað öllu frændfólkinu þar. Tókum hjólið með fyrir hann til að hann gæti hjólað og leikið í Víkinni.

Hann er búinn að vera í endalausum ævintýrum með afa og ömmu, fór á sjóinn með afa að veiða í soðið, fór á hestbak með Valda afa-bróður, fékk að taka á móti nýja hundinum hjá Gunna og krökkunum, búinn að læra að klifra upp á leikskólann og fleira.

Tengdó ætluðu að koma suður á föstudag, leggja af stað annað kvöld og koma í bæinn snemma á föstudag. Í kvöld hringdu þau svo og spurðu hvort Frank mætti vera lengur fyrir Vestan. Þau breyttu sínum ferðaplönum og ætla ekki að koma fyrr en á sunnudag. Við Ösp sitjum hérna voða sorrí yfir því að fá ekki púkann okkar heim fyrr en á sunnudag, en huggum okkur við að hann skemmtir sér vel með ömmu og afa.

<fb:like layout="standard" show_faces="true" action="like" font="arial" colorscheme="light"  href="http://www.vefblogg.com/2010/07/frank-gabriel-ekkert-a-heimleid/" width="200"></fb:like>

Eru stjórnvöld að reyna að hafa áhrif á hlutlausa dómstóla??
Fitch matsfyrirtækið gaf út óvissu-”ummæli” í gær um fjármálakerfið á Íslandi; sagði dóm Hæstaréttar um ólögmæti gengistryggðu lánana geta dregið úr stöðugleika fjármálakerfising og seinka efnahagsbata á Íslandi.

Gylfi Magnússon viðskiptaráðherra sagði í fréttum RÚV í gær að

“ef íslenska dómskerfið leysir þetta viðfangsefni á sómasamlegan hátt”

verði niðurstaðan ekki í líkingu við þá sem Fitch mat stöðuna.

Hvað er “sómasamlegur háttur”?? Er það að dæma lánin lögleg gegn fyrrum dómi Hæstaréttar?? Eða er það að setja á lánin háa vexti og verðtryggingu til að hægt sé að bjarga fjármálakerfinu?

Er ekki “sómasamlegur háttur” að dæma eftir lögum, en draga ekki taum annars aðilans að kröfu stjórnvalda? Svona ummæli, þar sem algjört virðingaleysi er borið fyrir landsmönnum sem berjast við að greiða af sínum skuldbindingum, algjört virðingarleysi er borið gagnvart lögum landsins og algjör undirlægja gagnvart fjármálastofnunum gera mig alveg óstjórnlega reiðan.

<fb:like layout="standard" show_faces="true" action="like" font="arial" colorscheme="light"  href="http://www.vefblogg.com/2010/07/eru-stjornvold-ad-reyna-ad-hafa-ahrif-a-hlutlausa-domstola/" width="200"></fb:like>

Fjármögnunarfyrirtækin verða öll gjaldþrota
Ég sagði við marga í framhaldi af því að dómur Hæstaréttar um lögmæti gengistryggingar og byrjað var að rífast um vextina sem notast ætti við af þessum lánum, að þau yrðu hvort eð er öll gjaldþrota. Það er nú að koma í ljós og fyrsta fyrirtækið er að falla.

Þegar Seðlabanki og Fjármálaeftirlitið komu fram með tilmæli um að notast ætti við óverðtryggða vexti Seðlabankans, til að koma í veg fyrir gjaldþrot fjármögnunarfyrirtækjanna, voru rökin þau að þessir vextir, eða verðtrygging + vextir, myndi koma í veg fyrir óvissu og gjaldþrot fyrirtækjanna. Koma átti í veg fyrir gjaldþrotin til að ríkissjóður myndi ekki þurfa að leggja fram pening, eða tapa pening á gjaldþrotunum. Ofgreiðslur lánþegar skiptu í þessu samhengi stjórnvöld engu máli.

Verðbætur og vextir eru stighækkandi eftir því sem líður á lánið. Það að setja verðtryggingu á lánsupphæð sem er “upprunaleg”, ekki “gengistryggð”, gagnast því ekki fjármögnunarfyrirtækjunun sem þurfa að standa “núna” skil á upphæð sem er tvöföld sú upphæð sem þau fá frá lántakandanum (að því gefnu að þau hafi í raun sjálf fjármagnað sig með lánum í erlendum gjaldmiðli, en ekki bara tekið lán hjá innlendum banka). Það að eftir einhver par ár sé verðtrygging búin að ná í skottið á gengistryggingunni og skilar þá fjármögnunarfyrirtækinu hærri greiðslum en gengistrygging væri að gera á þeim tíma, bjargar ekki fjármögnunarfyrirtæki úr þeirri snöru sem það er nú komið í, í stað lántakandans sem áður var í sambærilegri snöru fjármögunarfyrirtækisins.

Það er alveg sama hvernig þessum málum verður snúið, hvort sem að samningsvextir, verðtrygging eða óverðtryggðir vextir verði settir á, fjármögnunarfyrirtækin eru sokkin.

Mér er sama þó þessi fyrirtæki fari á hausinn, í þeirri merkingu að þau hafa gengið hart fram í að innheimta skuldir sem ekki var stofnað til nema að hluta og þegar vörslusviptir hlutir voru seldir var það með svo miklum afföllum að lántakendur fengu lítið uppí skuldina. Þess vegna er mér sama þó þessi fyrirtæki fari á hausinn. Mér er einnig sama um eigendur fyrirtækjanna sem hafa með eignarhaldi og þögn samþykkt þessa harkalegu framgöngu fyrirtækjanna.

Ég er aftur á móti ósáttur við að fyrirtæki sem hefur ofrukkað lántakendur um greiðslur af lánum skuli ekki þurfa að greiða til baka. Þessir ofgreiddu peningar eiga að vera forgangskröfur að mínu áliti og endurgreiðast að fullu. En hér eru stjórnvöld við völd sem ekki hafa kjark til að taka sér stöðu með heimilum og skuldurum. Því miður.

<fb:like layout="standard" show_faces="true" action="like" font="arial" colorscheme="light"  href="http://www.vefblogg.com/2010/07/fjarmognunarfyrirtaekin-verda-oll-gjaldthrota/" width="200"></fb:like>

Og hvað mega útlendingar þá kaupa á Íslandi?
Í tilefni þessarar umræðu um Magma Energy og skúffuna í Svíþjóð, fór ég að spá hvað það er sem útlendingar mega og mega ekki gera á Íslandi. Útlendingar mega ekki eiga náttúruauðlindir og ekki í fisk-iðnaðinum.

Það sem á að bjarga Íslandi úr kreppunni eru m.a. fjárfestingar útlendinga á Íslandi. En hverju eiga þeir að fjárfesta í? Hvað er þess virði að það sé leggjandi fjármagn í fjárfestingu hér?

Ísland hefur þrennt að bjóða: náttúruauðlindir í orku, fisk-iðnað og ódýrt rafmagn. Tvennt mega útlendingar semsagt ekki versla, og það þriðja slást Íslendingar sjálfir um að falbjóða á svo lágum verðum að hingað vilja útlendingar koma með þung-iðnað í einhverju mæli. Áhættan við að koma með þung-iðnað til Íslands er að stjórnarfarið hér er svo óstöðugt að skattar og gjöld geta rokkað mikið á þeim líftíma sem áætlaður er á fjárfestingunni.

Ég held að útlendingar hafi áhuga á orkunni og fisknum, takmarkað áhuga á að byggja stórar verksmiðjur og engan áhuga á öðru. En það skiljum við ekki. Við höldum að útlendingar komi hingað með fullar ferðatöskur af seðlum leitandi að fallegum hótelum eða pylsuvögnum til að kaupa fyrir milljarða (sem eiga auðvitað að skila sér allir til ríkissjóðs).

Ég sé ekki fyrir mér að mikil fjárfesting af hendi útlendinga sé að fara að eiga sér stað hér næstu ár, því það sem við höfum að bjóða er bannað að selja.

<fb:like layout="standard" show_faces="true" action="like" font="arial" colorscheme="light"  href="http://www.vefblogg.com/2010/07/og-hvad-mega-utlendingar-tha-kaupa-a-islandi/" width="200"></fb:like>

Tjaldvagn og útilegur
Frank Gabríel og Almari Frey líkar lífið í tjaldvagninum

Þá eru tvær útilegur á tjaldvagninum að baki og fleiri framundan. Tjaldvagninn var sannarlega góð kaup og hafa kveikt í okkur Ösp mikla ferðalöngun um landið. Þurfum að hafa vit fyrir hvort öðru til að koma í veg fyrir kaup á rafmagns-kæliboxi, hitablásara, tugum metra af rakavarðri rafmagnssnúru, útilegustólum og öðrum óþarfa, sem þó er alveg bráðnauðsynlegur!! Ætlum að láta fyrst um sinn duga að kaupa plastdiska, -glös og hnífapör þannig að ekki þurfi að tæma eldhúsið heima fyrir hverja útilegu.

Tjaldvagninn er ótrúlega vel með farinn, og þá ekki endilega miðað við að hann er 1980 árgerð, en okkur grunar að það hafi verið saumað á hann nýtt tjald og fortjald þegar vagninn var fluttur til landsins fyrir 15 árum. Með í kaupunum fylgdi laust “eldhús”, gaseldavél, heimasaumaðar gardínur, dúkur í fortjaldið og fleira smádót.

Subaru-inn ræður vel við tjaldvagninn enda ekki mikil þyng í honum, innan við 400kg. Það munar þó miklu fyrir okkur að losna við að hafa tjald í skottinu, ásamt því að hægt er að hafa nokkuð af dóti bæði inni í vagninum þegar hann er lagður saman og einnig er farangursgrind ofan á honum sem segl-dúkurinn fer yfir. Skottið, sem yfirleitt var smekkfullt (eins og sjá má hér í ferðalagi sumarið 2009) er núna aðeins hálft og ekkert dót til fóta hjá strákunum.

Tvær útilegur að baki eins og áður sagði, ein í Miðskógi hjá Laugarvatni fyrir viku síðan og svo útilega með starfsmannafélaginu hjá Samskip í Hraunborgum í Grímsnesi síðustu helgi. Báðar útilegurnar voru alveg frábærar, strákarnir skemmtu sér mjög vel og fengu að “leika lausum hala” eða þannig, fengu semsagt að vera úti að leika (Frank á róló, Almar við tjaldið) án þess að við Ösp værum yfir þeim 24/7.

Næstu helgi eru tvö ættarmót, annað er fyrir utan Grindavík en hitt er haldið á Þingvöllum. Við ætlum að reyna að mæta á bæði fyrst að ekki er lengra á milli þeirra og njóta þess besta frá báðum mótunum.

Helgina þar á eftir verður lengra að fara, en þá er ættarmót á Núpi við Dýrafjörð. Það er alltaf skemmtilegt að fara vestur, vonandi náum við að teygja ferðina í annan hvorn endan þannig að þetta verði ekki bara akstur á ættarmót, ættarmót og akstur til baka. Það væri skemmtilegt að hafa tíma til að stoppa í Bolungarvík hjá tengdó eða hjá Ásu á Ísafirði í 1-2 nætur öðru hvoru megin við ættarmótið.

Þar sem við Ösp erum alveg snarvitlaus í útilegur þessa dagana og höfum alveg ótrúlega gaman af því að keyra (eða þannig) með strákana pirraða í aftursætinu þá ætlum við þar á eftir að skella okkur í útilegu með saumaklúbbnum. Stutt frá Reykjavík var “leitarskilyrðið” og verður því farið í Fossatún í Borgarfirði, á Flúðir eða álíka þá helgi.

<fb:like layout="standard" show_faces="true" action="like" font="arial" colorscheme="light"  href="http://www.vefblogg.com/2010/07/tjaldvagn-og-utilegur/" width="200"></fb:like>

Yfirtaka framkvæmdavalds á dóms- og löggjafarvaldi
Ég hef viljandi ekkert skrifað um dómana tvo sem féllu í Hæstarétti 16. júní sl. og snéru að lögmæti þess að tengja afborganir af lánum við gengi erlendra gjaldmiðla. Ég hef vissulega skoðun á því hvað ég tel rétt í því efni og hvað sanngjarnt. Á sama hátt hef ég skoðun á íslensku verðtryggingunni sem ver fjármagnseigendur (bankana og lífeyrissjóði) út yfir gröf og dauða því þeir eru einu aðilarnir sem ég tel lána peninga til lengri tíma og hafa atvinnu af því að höndla með peninga.

Eftir að hafa lesið yfir dómana og lögin sem vitnað var til í þeim þá finnst mér augljóst hvað hæstiréttur ætlaðist til. Hann skildi ekki eftir svigrúm til túlkana eins og ríkisstjórnin, ráðherrar í henni og fjármálafyrirtækin hafa haldið fram. Samningarnir standa, fyrir utan að eitt atriði sem snéri að því að tengja saman afborganir við gengi erlendra gjaldmiðla var dæmt ólöglegt. Vextir á þessum lánum er lágir m.v. íslenska okurkerfið, en eðlilegir m.v. erlend fjármálakerfi. Fjármálafyrirtækin sjá auðvitað framá að tapa á þessu, á sama hátt og lántakendur hafa tapað gríðarlega á gengisfalli krónunnar frá því í mars 2008 (eða jafnvel fyrr). Hagsmunir almennings skiptir framkvæmdavaldið engu máli. Framkvæmdavaldið er önnum kafið við að koma fjármunum í vasa valdra vina og vill fá frið til þess. Í hjáverkum er verið að reyna að leppa upp á þjóðfélagið og þjóðarskútuna.

Til að koma fjármálafyrirtækjunum til bjargar hefur ríkisstjórnin talað fyrir ákveðinni “lausn” sem myndi færa mikla fjármuni frá skuldurum til fjármálafyrirtækjanna. Lausnin felst í því að miða ekki við samningsvextina, sem miðað við hæstaréttardómana eiga að halda þar sem þeir voru ekki feldir úr gildi, heldur miða við annaðhvort verðtryggingu lánana og verðtryggða vexti ofan á hana, eða óverðtryggða vexti Seðlabankans. Báðir þessir kostir færa eins og áður sagði peninga frá skuldurum til fjármálafyrirtækja.

Nú er það svo að aðeins tveir aðilar geta komið fram með lausnir. Réttara sagt getur annar aðilinn komið fram með lausnir, hinn aðilinn gaumgæfir lagabókstafinn og úrskurðar skv lögum. Þessir aðilar eru Alþingi og dómstólar landsins.

Framkvæmdavaldið og stofnanir þess eru núna búin að stíga gróflega yfir þá línu sem aðskilur þrískiptingu valds samkvæmt stjórnarskrá Íslands í dómsvald, löggjafarvald og framkvæmdavald. Í morgun gaf Seðlabanki Íslands og Fjármálaeftirlitið út “tilmæli” til fjármálastofnana um hvernig þær eigi að endurreikna vaxtagrunn þeirra lána sem voru með ólögmætu ákvæði samkvæmt hæstarétti, en tilmælin falla vel að þeim hugmyndum sem fjármálafyrirtækin voru með sem lausn, en auðvitað síður að þeim skilning sem lántakendur voru með.

Með þessum tilmælum ryðst framkvæmdavaldið inn á valdsvið dóms- og löggjafarvalds og reynir að haga niðurstöðum fjármálafyrirtækjunum í hag með því að rannsaka, dæma og framkvæma, allt í sömu gjörðinni, og algjörlega án nokkurs umboðs til þess. Ef þetta fær að viðgangast núna, tel ég öruggt að þetta muni gerast aftur. Og aftur og aftur og aftur. Óháð því hvert tilefnið er núna verður að stöðva tilraunir framkvæmdavaldsins til að ryðja úr vegi dóms- og löggjafarvaldinu.

<fb:like layout="standard" show_faces="true" action="like" font="arial" colorscheme="light"  href="http://www.vefblogg.com/2010/06/yfirtaka-framkvaemdavalds-a-doms-og-loggjafarvaldi/" width="200"></fb:like>

Út að hjóla
Frank Gabríel í skíðabrekkunni í Seljahverfi að hvíla lúin bein í hjólatúr.

Er búinn að enduruppgötva hve gaman er að fara út að hjóla.

Fór með Frank Gabríel út að hjóla síðasta sunnudagskvöld og hann stóð sig eins og hetja í ansi löngum hjólatúr. Ætluðum upphaflega aðeins að hjóla hérna í næsta nágrenni en áður en við vissum af vorum við komnir langleiðina yfir í Seljahverfið og fórum því til ömmu og afa í Raufarseli og fengum okkur að drekka. Frank Gabríel sagðist þá vera þreyttur og var alveg til í að fá far heim, en ákvað að lokum að hjóla heim fyrst hann hafði hjólað þetta langt að heiman.

Fórum aðra leið heim en yfir í Seljahverfið, og það var svolítið erfitt fyrir Frank Gabríel því það voru endalausar brekkur að fara upp á leiðinni heim.

Ég fór svo einn út að hjóla eitt kvöldið núna í vikunni, fór niður með Elliðaánum niður í Elliðaárdal og hjólaði sem leið lá að Sprengisandi við Reykjanesbraut. Þar tók hjólaskrattinn uppá því að bila. Legurnar í afturdekkinu voru orðnar slappar eftir álagið sem barnastóll og þyngin mín lagði á þær, og þar sem ég var kominn eins lagt að heiman og ég ætlaði þá bilaði hjólið auðvitað þar. Ég gat komið í Raufarsel með herkjum og gerði tilraun til að laga hjólið þar. Eyddi góðum klukkutíma í að skrúfa í sundur allt sem tengist öxlinum á afturdekkinu og laga legurnar, aðeins til þess að geta hjólað á hjólinu 400 metra áður en það bilaði aftur, og nú verr en áður. Ég neyddist því til að labba með hjólið heim frá mömmu og pabba yfir Vatnsendann.

Dekkið fór í viðgerð í gær og fæ ég það (vonandi) aftur á þriðjudag. Ég ætla þá aftur út að hjóla og krosslegg fingur um að hjólið klikki ekki í það skiptið.

<fb:like layout="standard" show_faces="true" action="like" font="arial" colorscheme="light"  href="http://www.vefblogg.com/2010/06/ut-a%c3%b0-hjola/" width="200"></fb:like>