Byrjuð að pakka
Ég er byrjuð að pakka, ákvað að byrja snemma þannig að maður yrði ekki á haus hérna síðustu dagana fyrir afhendingu. Nú erum við búin að búa hér í rétt rúmlega fimm ár og það er gersamlega ótrúlegt hversu mikið drasl er búið að safnast upp. Er semsagt búin að vera að tína út úr fataskápunum og er nánast búin að henda jafn miklu og ég er búin að pakka. Á ekki eftir að sakna þess drasls.
Ég er orðin ógeðslega spennt að flytja, hlakka svo geðveikt til að koma okkur fyrir í nýju íbúðinni. Þarna verður allt eftir okkar höfði, eldhúsinnréttingin, fataskáparnir og baðherbergið og ég bara get ekki beðið eftir að byrja að raða dótinu okkar!!! Klæjar í puttana að byrja að SKIPULEGGJA.
Annars er næst á döfinni ferð norður í Eyjafjörð þar sem við verðum í sumarbústað í viku. Þetta er víst rosa flottur bústaður og að sjálfsögðu er þar heitur pottur sem við ætlum að nota vel. Foreldrar okkar beggja ætla að kíkja í einhverja daga og svo ætlum við að reyna að fara aðeins um svæðið og skoða okkur um. Að þeirri viku lokinni fer svo Frank aftur í vinnuna. Verður eflaust skrítið að vera aftur ein heima með Frank Gabríel.
Ösp skrifaði klukkan 22:56 | | Varanleg slóð
Íbúðin á efstu hæðinni í Álfkonuhvarfi til sölu
Íbúðin á hæðinni fyrir ofan okkur í Álfkonuhvarfi var auglýst til sölu í fasteignablöðunum síðasta mánudag. Greinilegt að einhver keypti hana til að græða á henni, því verðmiðinn sem settur var á íbúðina er 31 milljón, sem er 6,3 milljónum hærra en við erum að borga fyrir íbúðina okkar. Skil ekki hvernig hægt er að tjúna verðið svona rosalega upp á þessum tíma frá því í febrúar/mars.
Annars erum við alltaf að bæta við og breyta í íbúðinni okkar. Í dag fórum við í Baðstofuna og breyttum um flísar á forstofu, bað og þvottahúsi og ákváðum að láta leggja sömu flísar á eldhúsið líka. Þetta eru mjög dökkar náttúruflísar, spennandi að sjá hvernig þær taka sig út.
Einnig fórum við í Byko og breyttum vaskinum í eldhúsinu, stækkuðum baðkarið um 10 cm á kant (ég þoli ekki þessi smábaðkör sem ekki er hægt að liggja í), létum bæta alvöru "ömmu" sturtuhaus við blöndunartækið á baðkarinu og svo keyptum við glerhlíf til að setja á baðkarið í stað sturtuhengis.
Breytingarnar í Byko kostuðu um 75þ, í Baðstofunni um 20þ, breytingar á eldhús- og baðrinnréttingu hjá JKE-Design kosta 290þ, kostnaður hjá Rúmmeter vegna breytinga á raflögnum í eldhúsi er 80þ og hugsanlega einhvern 20-30þ vegna breytinga á loftnetskerfi og innfellt næturljós í vegg. Til viðbótar kemur svo parket sennilega um 500þ og gardínur 50-100þ. Með öllu ætti íbúðin því að standa í tæpum 26 milljónum, eða 198þ/m2 sem er held ég vel sloppið fyrir draumaíbúðina. Við erum að selja Gullengið á tæpa 211þ/m2 sem er án bílageymslu og 12 ára gamalt, þannig að það er ekki annað hægt en að vera sáttur.
Frami skrifaði klukkan 23:31 | | Varanleg slóð
Nýtt leiðakerfi Strætó
Nýtt leiðakerfi Strætó var tekið í gagnið á laugardaginn. Þetta á víst að vera bylting og þvílík samgöngubót að í huga stjórnenda Strætó og borgar- og bæjarstjórnanna sem standa að Strætó BS munu einkabílar allt að því hverfa og íbúar byggðalaganna sem Strætó þjónustar flykkjast í vagnana því þægindin við það að nota almenningssamgöngur eiga að vera svo mikil. Ég sé það því miður bara ekki gerast. Íbúar höfuðborgarsvæðiðsins hafa sýnt hvaða vilja þeir hafa í verki, þeir hafa fjárfest í einkabílum og minnkað notkun á almenningssamgöngum. Ég efast um að nokkur hafi haft rænu á að athuga hvort að íbúar vilji láta þrengja að almennri umferð til að liðka fyrir almenningssamgöngum. Almenningssamgöngur ganga í borgum eins og London því þar er þægilegra og einfaldara að nota strætó eða neðjanjarðarlestir en því er öfugt farið á höfuðborgarsvæðinu; það er strjábýlt og illa skipulagt fyrir almenningssamgöngur og því einkabíll eini raunhæfi kosturinn ef ferðaplanið er meira en stutt ferð frá a til b, t.d. að fara í matvöruverslun á leiðinni heim úr vinnu. Ég hef takmarkaðan áhuga á að byrja á að taka strætó úr vinnunni, með ferðatölvuna á bakinu, í Spöngina og ganga svo heim með allt það sem ég versla þar. Þá er betra að geta ráðið sínum ferðum sjálfur og keyra beint í búðina og svo allt draslið heim eftir innkaupaferðina.
Í dag fór ég að leita mér að skóm og fór á nokkra staði til þess. Þessi túr sem ég tók hefði verið dauðadæmur í strætó, en ég byrjaði á að keyra í Skeifuna, stoppaði þar í 10 mín, fór svo í Kringluna í 30 mín og keyrði svo út á Granda til að skoða skó á skómarkaði þar. Þaðan fór ég svo upp í Grafarvog. Ég vil ekki einu sinni reyna að hugsa um hversu marga vagna ég hefði þurfti að taka til að geta þetta eða tímann sem hefði farið í þetta. Aksturinn tók á einkabíl um 30-40 mínútur... ætli það megi ekki margfalda það með 4 til 5 til að fá út heildar ferðatíma með strætó, enda ekkert sem heitir beinar ferðir þar eða hoppa upp í vagn á þess að vera á biðstöð í 10 mínútur.
Bara að komast frá Grafarvogi út á Granda innifelur 3 strætisvagna og ferðatíma upp á 50 mínútur. Þá geri ég ekki ráð fyrir að stoppa í Skeifunni eða Kringlunni. Það má bæta amk 2 vögnum við ferðina ef ég stoppa þar og 20 mín í ferðatíma (2 stopp á Miklubraut og nokkuð labb).
Það má þó ekki draga úr því vægi almenningssamgangna að þær geta hentað ágætlega ef ferðin er á milli tveggja staða án stopps á leiðinni. Flestir nota strætó til að komast í og úr vinnu eða skóla.
Ég prófaði því að nota
ráðgjafann á bus.is til að leita að bestu leiðum heiman frá mér í vinnuna. Ég prófaði bæði Gullengið sem og Álfkonuhvarf, en góðar samgöngur þaðan verða mikilvægari eftir nokkra mánuði.
Tillögurnar sem ég fékk fyrir Gullengi eru alveg ágætar. Fyrsta tillagan er að ganga yfir grasið hér á móti út á Borgarveg og taka leið 16 alla leið í Borgartún. Á skv ráðgjafanum að taka 31 mín frá upphafi til enda. Tillaga 2 var eiginlega jafn góð, 2 vagnar og 33 mínútur. Munurinn var að í stað þess að taka strætó á Borgarvegi þá tæki ég vagn í Gullengi og skipti í leið 16 í Ártúni. Kemur því næstum á sama stað niður. Er bara hræddur við að skiptingin í Ártúni gæti klúðrast því vagnarnir eiga að vera þar á sömu mínútunni. Má ekki skeika miklu til að allt fari til fjandans og seinni vagninn hverfi án þess að ég sé um borð....
Tillögurnar sem ég fékk fyrir Álfkonuhvarf eru ekki alveg jafn góðar. Þær innifela allar tvo vagna eða fleiri, en eiga að taka sama tíma og ferðirnar úr Gullengi í vinnuna, eða um 30+ mínútur. Fyrsta tillagan er að taka leið 26 frá Vatnsendavegi í Mjódd og skipta þar yfir í leið 12. Sama upp á teningnum þar og með skiptin í Ártúni, soldið hræddur um að skiptingin geti misfarist vegna tafa eða umferðar. Aðrar tillögur eru tímafrekari eða verri og koma því varla til greina.
Þar sem aksturstími heiman frá mér í vinnuna er um 15 mínútur en ferðatími með strætó aldrei styttri en 30 mínútur finnst mér þetta ekki valkostur nema í neyð og þegar ég veit að ekki þarf að útrétta neitt þann daginn sem strætó verður fyrir valinu sem ferðamáti. Ég get ekki sagt annað en að ég hálf vorkenni fólki sem þarf að nota strætó sem aðal ferðamáta.
Frami skrifaði klukkan 23:34 | | Varanleg slóð
5 dagar búnir af fríinu....
og ég ekki búinn að gera rassgat af viti.
Frami skrifaði klukkan 19:30 | | Varanleg slóð
Gúrkutíð
Það er greinilega gúrkutíð í íslensku þjóðlífi núna, vantar krasserandi mál sem allir fjölmiðlar geta ráðist á eins og hrægammar.
Augljóstasta birtingarmynd gúrkutíðarinnar er sú að ekki má opna sjónvarp, útvarp eða dagblað öðruvísi en að Hrafn Gunnlaugsson sé þar gasprandi um útgáfu
Hrafnsins flýgur á DVD disk, minkagreni í Laugarnesi eða slátt Reykjavíkurborgar á grasbala og hól í Laugarnesi. Hrafn virðist í gúrkutíðinni hafa ótakmarkaðan aðgang að fjölmiðlafólki sem vantar uppfyllingarefni í dagskrárgerðina hjá sér. Þetta er svosem ekkert slæmt, Hrafn oft á tíðum skemmtilegur lífskúnsiner, en einhverstaðar verður að draga mörkin. Það verður að finna fleiri
fræga Íslendinga sem nenna að tjá sig við fjölmiðla.
Frami skrifaði klukkan 16:26 | | Varanleg slóð
Í mömmuleik
Þetta er nú hálflélegt hvað maður er latur við að blogga. Alla vega hér, ég er í rauninni að "blogga" þegar ég skrifa á heimasíðuna hans Franks Gabríels. Það sem gerist hjá honum er svona eiginlega það sem gerist hjá mér, það er fullt starf og meira en það að vera mamma. Og það er sko ekki leiðinlegt. Hljóma örugglega mjög metnaðarlaus og klisjukennd þegar ég segi að þetta sé mjög gefandi og meira gefandi en nokkuð starf sem ég hef sinnt. Það var t.d. alveg ótrúlega tilfinning þegar hann horfði í augun á mér og skælbrosti í fyrsta skipti.
En mig langar soldið að skrifa um nokkuð sem er nú reyndar orðið ansi þreytt umfjöllunarefni á bloggsíðum og annars staðar.... hana Silvíu Nótt. Ég er búin að fylgjast með henni frá byrjun og einnig reynt að fylgjast með umfjölluninni um hana og þáttinn. Mér finnst hún sjúklega fyndin og fannst frá byrjun og fannst eiginlega fyndnast þegar fólk var að hneykslast á henni. Ég held að það hafi virkilega verið fólk sem tók hana trúanlega í upphafi, héldu virkilega að þetta væri "alvöru". Fólk var að tala um hvernig hún gæti málað sig svona og hvaða erindi þessi stelpa átti í sjónvarpið, var greinilega ekki að fatta djókið. En þegar leið á virðist sem fleiri og fleiri hafi farið að fíla hana og geta hlegið að þessari vitleysu. Ég er náttúrulega með svo þróaðan húmor og svo mikill "trendsetter" þannig að ég fílaði hana strax.... Fyrir mig persónulega stendur upp úr þegar hún var að gefa 15 ára stelpu sem langaði að kyssa kennarann sinn ráð, og þegar hún var að tala um notkun matvæla í kynlífi (enginn rjómi á þeim bænum - bara rækjusalat). Án þess að vita neitt um það hlýtur þessi persóna að vera byggða á raunverulegum fyrirmyndum, kannski einhverjum glanspíum sem eru svona ógeðslega góðar með sig, spá bara í útlitið og er virkilega forheimskar - en vita það bara ekki. Tremma góður þáttur - okeeeeeeeeeei?
Í kvöld er svo saumaklúbburinn ásamt körlunum og grislingunum að fara að hittast. Vala og Bjarki ætla að bjóða í einhverja svaka borgara og svo verður vonandi spjallað og hlegið dátt fram eftir kvöldi. Á morgun skellum við okkur svo í bústað til mömmu og pabba og bróður míns og fjölskyldu á Bifröst. Heiti potturinn þar klikkar aldrei.
Ösp skrifaði klukkan 15:22 | | Varanleg slóð
Bland í poka
Horfði á hluta endursýningar Live 8 tónleikana í gær, var að horfa til að sjá Pink Floyd spila og
Váááá!!! Þeir voru ekkert smá góðir og fyrir aðdáanda Pink Floyd var þetta draumi líkast. Í raun draumur að rætast að sjá Roger Waters spila með David Gilmore og fleiri upprunalegum meðlimum Pink Floyd í fyrsta skipti í 22 ár, en samstarfið sprakk með hvelli eftir The Wall plötuna.
Áður en
Wish you were here var spilað sagði Waters "this is for all those who are not here, but specially for Sid". Ég þóttist greina smá sársauka í röddinni hjá Waters þegar hann sagði þetta, en nær öll platan
Wish you were here er sungin til og um Sid Barrett, fyrrum liðsmann Pink Floyd sem fór "óverdósaði" á eiturlyfjum fyrir um 35-36 árum og hefur verið á geðsjúkrahúsum síðan.
Árásir hryðjuverkamanna á London í vikunni voru nokkuð sjokkerandi. Þær sýna fram á að enginn er óhultur þegar öfgasinnaðir hryðjuverkamenn ætla sér eitthvað. Þetta var vissulega minna í sniðum en árásirnar á Tvíburaturnana fyrir tæpum 4 árum, en ásetningurinn er sá sami; að ráðst á saklausa borgara í daglega lífinu, óháð litarhætti, trúarbrögðum eða þjóðerni.
Mér þykir samt merkilegt hvað líf eru misverðmæt í fjölmiðlum. Allir fjölmiðlar vestan hafs og austan voru með gríðarlega umfjöllun fimmtudag, föstudag og laugardag um hryðjuverkin í London þar sem um 50 létust og allt að 300 særðust. Umfjöllun um þessar árásir á eftir að vera viðvarandi næstu vikurnar, það verður sagt frá þegar búið að er ná öllum líkum úr lestargöngum við King's Cross stöðina, þegar búið verður að laga lestargöngin, þegar lestin fer aftur að ganga o.s.frv. Það verður einnig sagt frá hertri öryggisgæslu í Bretlandi, handtökum grunaðra hryðjuverkamanna, ályktunum klerka múslima þar sem þeir mótmæla árásum sem þessum. Margir munu ekki þora aftur í neðanjarðarlestarnar í London, hræddir um að lenda í árás sem þessari. Svona mætti lengi telja afleiðingar árásinnar þar sem um 50 létust og 300 særðust.
Fréttir frá Írak þar sem tugir manna látast vikulega í hryðjuverkaárásum vekja ekki mikla athygli í Evrópu eða í Ameríku. Í dag voru gerðar amk þrjár sprengjuárásir í Írak þar sem 32 létust og tugir særðust alvarlega. Fréttin af þessu er samtals 6 línur á mbl.is. 6 línur takk fyrir. Ég hugsa að það séu svona 60 fréttir um London á mbl.is. Ólíku saman að jafna, ha? Svo má benda á þá staðreynd að síðan í apríl hafa 1.500 óbreyttir borgarar látið lífið í árásum hryðjuverkamanna í Írak... Er eitthvað gert í því? Nei, telst þetta ekki "eðlilegt" mannfall í landi þar sem geysar stríð? Stríð sem Bandaríkjamenn og Bretar efndu til í vanþökk flestra borgara Íraks.
Við vorum fyrir vestan síðustu helgi í afslöppun og rólegheitum. Þar tók ég þátt í mínu öðru golfmóti á ævinni. Spilamennskan var ekki upp á það besta hjá mér, 94 högg. Það væri ágætt fyrir 18 holur en ég spilaði aðeins 9 holur... Úbs.
Það er alltaf ágætt að fara vestur, þar er svo annað tempó á lífinu en hér í bænum, svo miklu rólegra. Ein sjónvarpsstöð á heimilinu, lághraða 56k nettenging, 6 ferðir í búðina á dag eftir einhverju sem gleymdist að kaupa í fyrstu ferðinni og horft yfir til nágrannanna að athuga hvað þeir eru að gera. Ösp stríddi tengdapabba þegar hann sat í hægindastól sem snéri baki í gluggann og götuna. Fyrr um kvöldið hafði strolla af fullum körlum komið í rútu og farið inn hjá Þóa á móti og hafði verið fylgst með því af áhuga. Ösp kallaði því yfir sig "hva, Dengsi bara að sýna körlunum bílinn (hann er nýbúinn að kaupa húsbíl)". Tengdapabbi snarsnérist í stólnum og glápti út, en þar var ekkert að sjá. Ösp náði tengdapabba þarna alveg. :)
Síðasta vika í vinnunni var rosaleg. Það var svo mikið að gera hjá mér að ég gat varla sagt nafnið mitt eða staðið upp án þess að síminn hringdi eða vandamál kæmi upp. IBM er búið að vera duglegt við að búa til vandamál undanfarið með því að senda ekki þá vöru sem við pöntum heldur "frýs" hún í kerfinu hjá þeim og virðist vera að detta í framleiðslu og svo í flutning til Íslands en ekkert gerist og enginn hefur getað gefið nein svör varðandi eitt eða neitt. Það fór því mikill tími í að reyna að afpanta vörur hjá IBM og redda þeim frá dreyfingaraðilum í Danmörku. Það tókst svona að einhverju leiti og lendir stór sending núna á þriðjudag/miðvikudag á lager hjá okkur af vöru sem beðið hefur verið eftir síðan um miðjan júní.
Mamma verður 50 ára á morgun. Stórafmæli hjá henni. :) Hún ætlar að halda veglega veislu heima hjá sér, inni í húsinu og úti í garðinum. Vonandi að það verði gott veður, þurrt og stillt. Það er búinn að vera heljarmikill undirbúningur hjá þeim og stress í gangi, eldhúsið sem átti að vera komið upp og tilbúið í kringum 15. júní var klárað núna í vikunni og loka-loka frágangur á jarðhæðinni, sem er búin að vera í rúst síðan um miðjan maí þegar byrjað var á verkinu, var framkvæmdur í dag en hann fólst í að setja upp ljós, myndir og raða húsgögnum aftur í stofuna og borðstofuna.
Nú krossleggja allir í fjölskyldunni fingur vegna veðurspárinnar sem er ekkert allt of glæsileg fyrir morgundaginn; alskýjað, skrúrir og gola. Vonandi rætist það ekki heldur verði brjálað gott veður. Allir að krossleggja fingur svo saman fyrir gott veður.
Frank Gabríel vex og dafnar, mér finnst hann vaxa of hratt. Allt of hratt. Fötin sem hann notaði þegar hann kom heim af fæðingardeildinni eru nú orðin of lítil á hann. Hann er farinn að geta fylgst með með augunum, hann bregst við hljóðum, hann er að byrja að fatta hendurnar og ná tökum á ósjálfráðu hreyfingum þeirra. Svefninn er í nokkuð góðri reglu, hann mætti þó vera duglegri að borða meira magn í einu en hann sofnar yfirleitt út frá pelanum eftir að hafa drukkið ca 65 ml af 125 ml og þarf að sofa í annaðhvort 1-2 klukkustundir óáreyttur eða í nokkrar mínútur og svo bleyjuskipti sem vekja hann og láta hann halda áfram að drekka.
Nóg í bili.
Frami skrifaði klukkan 23:06 | | Varanleg slóð