Um vefblogg.com
Höfundar pistla og eigendur vefblogg.com eru hjónakorn í Kópavoginum, komin langleiðina í þrítugt, með eitt barn, tvo bíla og skemmtilega mikið af skuldum sem hækka reglulega með verðbólgunni. Sannkölluð vísutölufjölskylda ef eitt barn bættist í hópinn.
Vefblogg.com fór í loftið 5. ágúst 2005 en þá höfðu pistlahöfundar hér skrifað á heima.blogspot.com óslitið frá því í júní 2002. Pistlanir þar urðu alls 1.278 á rúmum 3 árum og á þeim tæpy tveimur árum sem vefblogg.com hefur verið í loftinu (15. maí 2007) er búið að skrifa 457 pistla.
Fyrsta hugsunin bakvið skrifin 2002 var sú að skrifa nokkurskonar dagbók á vefinn, hafa þetta lítinn og persónulegan vef sem aðeins höfundar vissu um en fljótlega breyttist sú hugsun þar sem æ fleiri fóru að lesa það sem skrifað var. Dróg smátt og smátt úr dagbókarforminu og skrifum um daglegar athafnir og meira hefur borið á skoðunum og pælingum undanfarin ár.
Höfundar pistla skrifa undir nafni og taka ábyrgð á sínum skrifum. Athugasemdir (comment) eru á ábyrgð höfunda þeirra. Eigendur vefblogg.com áskilja sér rétt til að fjarlægja athugasemdir sem ekki eru skrifaðar undir réttu nafni höfunda, geta talist óviðeigandi eða ærumeiðandi.
19. júlí 2006.
Frank M. Michelsen – frankm-at-vefblogg.com
Kristín Ösp Þorleifsdóttir – osp-at-vefblogg.com
Popularity: 18% [?]
